Ísraelski herinn gerði loftárásir á skotmörk Hisbollah-samtakanna í nótt. Hisbollah-samtökin hafa einnig beint eldflaugum að norðurhluta Ísraels.
Í yfirlýsingu frá Hisbollah segir að miðað hafi verið á flugherstöð og vopnaframleiðslu nálægt borginni Haifa í norðurhluta Ísraels. Verið væri að bregðast við árásum Ísraela í vikunni.
Mikið uppnám ríkir innan Hisbollah eftir að tveir af leiðtogum þeirra voru drepnir í loftárás Ísraelsmanna í Líbanon á föstudag. Þarlend yfirvöld segja að 45 hafi látist í árásinni.