Ayatollah Ali Khamenei, æðstiklerkur Írans, segir að dráp Ísraela á háttsettum liðsmönnum Hisbollah muni ekki halda aftur af samtökunum, sem njóta stuðnings Írans.
„Sumir af kröftugum og mikilvægum liðsmönnum Hisbollah dóu píslarvættisdauða, sem án efa olli skaða á meðal Hisbollah, en svona skaði getur ekki knésett samtökin,“ sagði Khamenei á fundi með fyrrverandi starfsfólki og hermönnum sem tóku þátt í stríði Írans gegn Írak á árunum 1980 til 1988.