Manchin mun ekki styðja Harris

Manchin hefur ekki alltaf fylgt flokkslínunni.
Manchin hefur ekki alltaf fylgt flokkslínunni. Samsett mynd/AFP/Jeff Kowalsky

Joe Manchin, þingmaður í öldungadeild Bandaríkjaþings frá Vestur-Virginíu, mun ekki lýsa yfir stuðningi við Kamölu Harris, forsetaframbjóðanda demókrata, vegna afstöðu hennar til filibuster-reglunnar í öldungadeildinni.

Í öld­unga­deild­inni verða 60% þing­manna að vera samþykk­ir um að greiða skuli at­kvæði um til­tekið frum­varp. Þegar 41% minni­hluti þings­ins beitir málþófi til að stöðva frum­vörp meiri­hlut­ans er það kallað filibuster á ensku.

„Þetta er það eina sem fær okkur til þess að ræða og vinna saman. Ef hún afnemur þetta, þá yrði þetta [öldungadeildin] eins og fulltrúadeildin á sterum,“ sagði Manchin í viðtali við CNN.

Wall Street Journal greinir frá. 

Harris vill koma í gegn landslögum um fóstureyðingar

Um er að ræða reglu sem hefur verið í gildi í marga áratugi í öldungadeildinni en Harris vill að reglan verði afnumin til að koma í gegnum þingið landslögum um aðgengi að fóstureyðingum. Ítrekaði hún þessa afstöðu sína í útvarpsviðtali á dögunum. 

Manchin hafði áður gefið til kynna að hann væri tilbúinn að styðja Harris en að hann myndi fylgjast náið með afstöðu hennar til filibuster-reglunnar. Hann sagði þó að nýjustu ummæli hennar þýddu að hann myndi ekki íhuga að styðja hana lengur.

Svokallaður filibuster á ekki við þegar samþykkja þarf dómara eða ráðherra en gildir þó eins og fyrr segir um frumvörp. 

Sinema gagnrýnir Harris einnig

Kyrsten Sinema, öldungadeildarþingmaður frá Arizona, gagnrýndi Harris einnig og sagði í færslu á Twitter:

„Til að benda á hið fullkomlega augljósa, að fjarlægja filibuster-regluna til að koma á fót Roe v Wade gerir einnig framtíðarþingi kleift að banna allar fóstureyðingar á landsvísu,“ skrifaði Sinema og bætti við að hugmynd Harris væri hræðileg og skammsýn.

Bæði Manchin og Sinema voru kjörnir á þing sem demókratar en skilgreina sig nú sem óháða, en báðir þingmenn eru nær miðjunni en flestir demókratar á þingi. Báðir þingmenn eru þó hluti af þingflokki demókrata áfram.

Kyrsten Sinema.
Kyrsten Sinema. AFP

Gæti eyðilagt Bandaríkin að mati Manchin

Hvorki Manchin né Sinema eru að sækjast eftir endurkjöri í komandi þingkosningum sem fara fram samhliða forsetakosningunum 5. nóvember.

Filibuster-reglan stuðlar að því að flokkarnir vinni saman og kemur í veg fyrir of mikla flokkadrætti, sagði Manchin í viðtalinu.

„Ég held að þetta gæti eyðilagt landið okkar,“ sagði hann um hverjar afleiðingarnar gætu orðið ef reglan yrði afnumin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert