Skotið á einbýlishús

Sænska lögreglan rannsakar skotárás á einbýlishús í Hölö í Södertälje …
Sænska lögreglan rannsakar skotárás á einbýlishús í Hölö í Södertälje í nótt. AFP/Henrik Montgomery

Lögreglan í Södertälje í Svíþjóð, rúma þrjátíu kílómetra suðvestan Stokkhólms, var með mikinn viðbúnað við einbýlishús í Hölö þar í bænum fram á morgun eftir að skotið var á það í nótt.

Að sögn Helenu Boström Thomas, upplýsingafulltrúa lögreglunnar í Södertälje, er tæknideildarfólk enn við rannsóknir á vettvangi og hefur svæði umhverfis húsið verið lokað af meðan á þeim stendur. Þá stendur leit yfir að þeim er þarna var eða voru að verki.

Gengjaátök talin kveikjan

Svarar Thomas þeirri spurningu sænska ríkisútvarpsins SVT játandi hvort talið sé að atburðurinn í nótt tengist væringum glæpagengja á Stokkhólmssvæðinu. „Já, það er ljóst, og í tilfellum á borð við þetta skoðum við alltaf þann möguleika að tengsl séu við aðra svipaða atburði.

Hún vill ekki kveða upp úr með það hvort haft hafi verið í hótunum við einhvern þeirra sem í húsinu búa en það var raunar mannlaust þegar skotunum var hleypt af og má sjá fjölda kúlnagata í hurð fyrir aðaldyrum hússins. „Rannsókn málsins á eftir að leiða það í ljós þegar henni vindur fram,“ segir Thomas.

SVT

Aftonbladet

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert