Að minnsta kosti 60 þúsund heimili á Írlandi eru án rafmagns vegna stormsins Bert sem herjar nú á norðvesturhluta Evrópu.
Stormurinn hefur haft mikil áhrif á samgöngur bæði á Írlandi og í Bretlandi. Flóð eru víða á Írlandi á meðan snjór hefur raskað samgöngum í Bretlandi.
Mestur snjór féll í Skotlandi og Norður-Englandi. Breska veðurstofan hefur gefið út fjölda viðvarana vegna veðurs.
Um fjögur þúsund heimili í Bretlandi eru án rafmagns og þá hefur stormurinn raskað flugi til og frá Newcastle.