Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, fagnar handtökuskipun Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag á hendur Benjamíns Netanjahús, forseta Ísraels.
„Við styðjum handtökuskipunina. Við teljum mikilvægt að allar aðildarþjóðir fylgi þessari hugrökku ákvörðun til að endurnýja traust mannkynsins á alþjóðakerfinu,“ sagði Erdogan í ræðu í Istanbúl.
Dómarar við dómstólinn hafa gefið út handtökuskipun á hendur Netanjahú, Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra Ísraels, og Mohammed Deif, einum af yfirmönnum Hamas-hryðjuverkasamtakanna.
Netanjahú hefur sakað dómstólinn um gyðingahatur og handtökuskipunin hefur verið fordæmd harðlega af Joe Biden Bandaríkjaforseta. Erdogan hefur ítrekað gagnrýnt Ísraelsríki.
„Það er mjög brýnt að vestræn ríki, sem hafa um árabil kennt heiminum lexíu um lög, réttlæti og mannréttindi, standi við loforð sín á þessu stigi,“ bætti Erdogan við, en land hans er ekki aðili að dómstólnum.