Maður dæmdur í allt að 70 ára fangelsi fyrir að nauðga dóttur sinni

Dómstóll í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum dæmdi í dag 47 ára gamlan mann í allt að 70 ára fangelsi fyrir að nauðga dóttur sinni sem hann ættleiddi frá Rússlandi. Maðurinn situr nú af sér 15 ára dóm fyrir að dreifa 200 nektarmyndum af stúlkunni á netinu.

Maðurinn mun þurfa að sitja af sér fyrri dóminn og mun sá síðari bætast við hann.

Maðurinn, sem heitir Matthew A. Mancuso, ættleiddi stúlkuna árið 1998 frá heimili fyrir munaðarlaus börn í Rússlandi. Hún var þá 5 ára. Sýnt þykir að hann hafi brotið kynferðislega á henni allt þar til bandaríska alríkislögreglan braust inn á heimili hans og tók stúlkuna af honum árið 2003.

Við rannsókn á myndunum af stúlkunni sem maðurinn tók kom í ljós, að hann hafði tekið nokkrar þeirra á hóteli í Walt Disney skemmtigarðinum í Orlando í Flórída.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert