Verslunarmiðstöðin Harrods er nú búin að koma jólavarningi fyrir í hillum sínum og mætti jólasveinn með sebrahest af því tilefni í verslunina í dag. Mikil hitabylgja hefur verið undanfarið á Englandi og sjálfsagt fáir að hugsa til jólanna tæpum fimm mánuðum áður en þau bresta á. Jólasveinninn mun líta við í sérstakri deild sem tileinkuð er jólum, Jólaheiminum.
Harrods þykir ein íburðarmesta stórverslun heims og hefur með þessu útspili skákað keppinautnum Selfridges, sem vígir sínar jólavörur eftir tvo daga. Talsmaður Selfridges segir jólin koma sífellt fyrr. Sky fréttavefurinn segir frá þessu.