Kaþólska kirkjan samþykkir að greiða skaðabætur vegna kynferðislegs ofbeldis

Kaþólska kirkjan í Los Angeles hefur samþykkt að greiða yfir fimm hundruð manns, sem talið er að hafi orðið fyrir kynferðislegri ofbeldi að hálfu kirkjunnar manna. Eftir á að fara með samkomulag kirkjunnar við fórnarlömbin fyrir dómstóla og fá formlegt samþykki fyrir samningnum. Kveður hann á um að kirkjan greiði fórnarlömbunum 660 milljónir dala, tæplega 40 milljarða króna.

Þetta eru hæstu skaðabætur sem kaþólska kirkjan hefur greitt frá því að hneykslismál tengt kynferðislegu ofbeldi kirkjunnar manna kom upp á yfirborðið árið 2002, samkvæmt frétt BBC.

Með þessu samkomulagi hefur kaþólska kirkjan í Bandaríkjunum greitt um tvo milljarða dala frá árinu 1950. En frá árinu 2002 hafa tæplega eitt þúsund manns kært starfsmenn kaþólsku kirkjunnar í Kaliforníuríki. Samkvæmt skýrslu sem gefin var út árið 2004 hafa yfir fjögur þúsund kaþólskir prestar í Bandaríkjunum verið ásakaðir um kynferðislegt ofbeldi á síðustu fimmtíu árum.

Kardinálar ganga inn í Sixtusarkapelluna í Páfagarði
Kardinálar ganga inn í Sixtusarkapelluna í Páfagarði Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert