[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
Maxime Verhagen.

Standa ekki veginum fyrir aðildarviðræðum

Hollendingar munu ekki koma í veg fyrir að Evrópusambandið hefji viðræður við Ísland um aðild að sambandinu þrátt fyrir Icesave-deiluna. Þetta hefur hollenska fréttastofan ANP eftir utanríkisráðherra Hollands, Maxime Verhagen, í gær. Reuters fréttastofan vísar til ummæla ráðherrans fyrir tveimur vikum þar sem hann sagði að Icesave myndi hafa áhrif á aðildarumsókn Íslands að ESB. Meira

Ekki leyst í tæknilegum viðræðum

Einar K. Guðfinnsson segir að taka verði upp nýtt...

Álit Framkvæmdastjórnar ESB á aðildarumsókn Íslands var til umfjöllunar á fundi sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis í fyrradag að ósk Einars K. Guðfinnssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Meira

Ísland á hliðarlínunni

Mynd 520142

Ekki verður fjallað um umsókn Íslendinga að Evrópusambandinu á leiðtogafundi Evrópusambandsins sem verður haldinn á fimmtudag og föstudag í næstu viku, samkvæmt frétt norska blaðsins ABC Nyheter. Meira

Vilja aðildarviðræður þrátt fyrir Icesave

Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins.

Flestir þingmenn sem sitja í utanríkismálanefnd Evrópuþingsins vilja að Evrópuráðið ákveði á fundi sínum síðar í mánuðinum að hefja aðildarviðræður við Íslands. Skipti þar engu þær deilur sem tvö aðildarríki Evrópusambandsins, Bretland og Holland eigi við Íslendinga vegna Icesave. Meira

Leggst eindregið gegn viðræðum við Ísland

Mynd 520142

Einn helsti Evrópusérfræðingur franska dagblaðsins Liberation, Jean Quatremer, leggst eindregið gegn því að gengið sé til Evrópusambandsviðræðna við Ísland og hvetur til þess að leiðtogaráðið hafi ráð framkvæmdastjórnarinnar um viðræður við Ísland að engu. Quatremer skrifar á vef sinn Coulisses de Bruxelles að Ísland sé ekki tilbúið til þess að verða aðili að ESB. Meira

Finna ESB flest til foráttu

Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópusambandsins (ECB) í Frankfurt.

Íslendingar finna Evrópusambandinu flest til foráttu ef marka má frétt Reuters. Þar kemur fram að þegar kemur að sjávarútvegi þá telji Íslendingar að séu afskiptin of mikil en þegar kemur að skuldadeilu líkt og Icesave og stöðu ríkissjóðs Grikklands þá telji þeir að ekki sé nóg gert. Þetta þýði að Ísland, sem hafi margar góðar ástæður fyrir inngöngu í ESB, sýni lítinn áhuga nú. Meira

Ísland vinni heimavinnuna sína

Stigi í húsi Evrópuþingsins í Strassborg.

Þingmenn austurríska þjóðarflokksins og austurríska sósíaldemókrataflokksins voru gagnrýnir í umræðum á Evrópuþinginu í dag um væntanlegar aðildarviðræður Íslands og við Evrópusambandið. Meira

CNBC: Augljóst að Ísland getur ekki borgað

Mynd 512488

Stjórnandi þáttarins Strictly Money á sjónvarpsstöðinni CNBC og þeir sem komu fram í þættinum í gær voru sammála um að Íslendingar geti ekki greitt Bretum og Hollendingum til baka á þeim afarkjörum sem þeim standa til boða. Krafan sé Bretum til skammar og ekki bara það heldur hafi bresk yfirvöld aldrei átt að heimila starfsemi íslensku bankanna í Bretlandi. Meira

Samfylkingin hunsaði fund Evrópunefndar Búnaðarþings

Sigurbjartur Pálsson

Samfylkingin sá ekki ástæðu til að senda fulltrúa sína til fundar við Evrópunefnd Búnaðarþings sem hefur starfað síðustu tvo daga. Þetta kemur fram á vef Bændasamtaka Íslands. Meira

Maraþonfundir í Brussel gætu hafist síðla í haust

Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópusambandsins (ECB) í Frankfurt.

Viðbrögð við ítarlegri greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um stöðu Íslands gagnvart aðild að sambandinu falla í gamalkunnan farveg. Meira

Umsókn Íslendinga rædd í dag

Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar...

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun væntanlega samþykkja umsókn Íslendinga um að hefja aðildarviðræður í dag. Þetta kemur fram á vef írska sjónvarpsins, RTE News. Er þess vænst að samþykki ESB verði staðfest fyrir hádegi en viðræður Íslendinga og ESB gætu tekið langan tíma og reynst erfiðar. Meira

Vill öll norrænu ríkin í ESB

Mynd 520142

Ef norrænu ríkin eiga að taka skref í þá átt að mynda sambandsríki er nauðsynlegt að þau öll gerist aðilar að Atlantshafsbandalaginu, Evrópusambandinu og evrusamstarfinu, segir Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Er þetta svar hans við tillögu sænska rithöfundarins Gunnar Wetterberg um stofnun norræns sambandsríkis. Meira

Gæti frestað aðildarviðræðum

Miguel Angel Moratinos utanríkisráðherra Spánar.

Utanríkisráðherra Spánar, Miguel Ángel Moratinos, en Spánn er í forsæti Evrópusambandsins, segir að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin sé innanríkismál á Íslandi en þetta geti tafið fyrir aðildarviðræðum Íslands við ESB. Reuters fréttastofan hefur þetta eftir Moratinos. Meira

Vilja fréttaritara RÚV í Brussel

Fánar við höfuðstöðvar Evrópusambandsins.

Evrópusamtökin lýsa yfir áhyggjum vegna þeirrar ákvörðunar Ríkisútvarpsins að hafa ekki fréttaritara staðsettan í Brussel í komandi aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, að því er segir í tilkynningu. Meira

Serbar leggja lokahönd á ESB-umsókn

Forseti Serbíu, Boris Tadic Javier Solana, sem fer með...

Serbar munu senda frá sér aðildarumsókn að Evrópusambandinu á morgun, samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum en forseti Serbíu, Boris Tadic, mun fara til Stokkhólms og afhenda umsóknina. Meira

Sendiherra ESB á Íslandi kemur í byrjun árs

Evrópusambandið, höfuðstöðvar, Brussel.

verið staðfestur af hálfu ríkisstjórnar Íslands. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra undirritaði samkomulag við Benitu Ferrero-Waldner, sem fer með utanríkismál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, um stofnun sendinefndar ESB í Reykjavik sem taka mun til starfa í upphafi næsta árs. Yfirmaður sendinefndarinnar og sendiherra ESB verður Timo Summa. Meira

30,8 milljónir útlendinga búsettir í ríkjum ESB

Alls búa yfir 30 milljónir útlendinga í ríkjum ESB.

Alls bjuggu 30,8 milljónir útlendinga í ríkjum Evrópusambandsins í ársbyrjun 2008. Þetta svarar til 6,2% af mannfjölda ríkjanna 27. Flestir útlendinganna búa í Þýskalandi eða 7,3 milljónir en það er um 8,8% af fjölda íbúa Þýskalands. Hlutfallið er hins vegar hæst í Lúxemborg eða 42,6%. Meira

Samningahópar vegna ESB skipaðir

Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur skipað samningahópana tíu sem starfa munu með samninganefnd Íslands vegna fyrirhugaðra aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Í hópunum eiga sæti fulltrúar ráðuneyta og stofnana, hagsmunaaðila, félagasamtaka og háskólasamfélagsins. Gert er ráð fyrir að hóparnir komi saman á næstu dögum og vikum. Meira

Þingmenn taka þátt í aðalfundi ESB andstæðinga í Noregi

Ásmundur Einar Daðason

Í morgun fór sendinefnd níu Íslendinga til Noregs til að taka þátt í aðalfundi Nei til EU í Noregi, en það eru systursamtök Heimssýnar á Íslandi. Í sendinefndinni eru m.a. þrír þingmenn frá jafn mörgum flokkum. Meira

Össur staðfestir að ESB viðræður tefjist

Össur Skarphéðinsson í ræðustóli Alþingis

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, staðfestir í samtali við Bloomberg fréttastofuna í dag að aðildarviðræður við Evrópusambandið hafi verið blásnar af í næsta mánuði og að stefnt sé að því að þær hefjist í mars. Í samtali við Morgunblaðið í gær taldi Össur að þetta yrði niðurstaðan. Meira

Bildt: ESB góður kostur fyrir illa stæð ríki

Carl Bildt

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir að aðild að Evrópusambandinu sé góður kostur fyrir ríki sem standa illa í efnahagslegu tilliti. Þetta kom fram í máli Bildt á Evrópuþinginu í gær. Sagði Bildt þetta í framhaldi af ummælum þingmanns á Evrópuþinginu um að það væru illa stæð ríki sem vildu fá aðild að ESB og var Ísland nefnt sem dæmi um slíkt ríki. Meira

Össur í Róm

Utanríkisráðherra Ítalíu, Franco Frattini og Össur Skarphéðinsson

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra situr nú leiðtogafund Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm um fæðuöryggi í heiminum. Lagði ráðherra í ræðu sinni áherslu á aðgerðir til að auka fæðuöryggi á komandi árum og sagði Íslendinga reiðubúna að deila þekkingu sinni í því sambandi. Meira

Anna Pála gefur lítið fyrir ummæli Ásmundar Einars

Anna Pála Sverrisdóttir.

Anna Pála Sverrisdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, skrifar á vef ungra jafnaðarmanna að það sé engin frétt að Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG og formaður Heimssýnar, sé á móti Evrópusambandsaðild Íslendinga líkt og fram hefur komið. Meira

Fyrsti fundur ESB nefndar

Frímerki sem sýnir Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu.

Fyrsti fundur samninganefndar Íslands í væntanlegum aðildarviðræðum við ESB verður haldinn á morgun kl. 14:00 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Stefán Haukur Jóhannesson sendiherra er aðalsamningamaður Íslands og stýrir samninganefndinni. Í henni sitja, auk aðalsamningmanns, formenn tíu samningahópa og sjö aðrir nefndarmenn.

Lánar ESB Íslandi?

Evrópusambandið, höfuðstöðvar, Brussel.

Þrátt fyrir að Rússar hafi gengið úr skaftinu sem lánveitendur innan vébanda áætlunar AGS og stjórnvalda telur sjóðurinn að fjármögnun áætlunarinnar sé tryggð. Tiltekur sjóðurinn þar að í stað 500 milljón Bandaríkjadala láns frá Rússum megi eiga von á 150 milljón dala láni frá Evrópusambandinu. Meira

Ísland fær góða einkunn

Oli Rehn

Ísland fær góða einkunn hjá Oli Rehn, yfirmanni stækkunarmála hjá Evrópusambandinu, samkvæmt nýrri skýrslu um þau ríki sem sótt hafa um aðild að ESB. Þar kemur fram að Ísland byggi á langri lýðræðishefð og hafi í gegnum evrópska efnahagsbandalagið tekið upp stóran hluta laga sem gilda hjá ESB. Jafnframt sé Íslandi aðili að Schengen landamærasamstarfinu. Meira

Aðildarviðræður við Makedóníu

Mynd 503990

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mælti með því í dag að hefja aðildarviðræður við Makedóníu. Tæp 4 ár eru liðin frá því landið óskaði eftir viðræðunum. Olli Rehn sem fer með stækkunarmál ESB greindi frá þessu en hann kynnti ársskýrslu sína í dag. Ísland er ekki meðal ríkjanna á lista Rehn. Meira

Aðildarferli ljúki á næsta ári

Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar

Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, kvaðst að loknum fundi sínum með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í kvöld vonast til að sjást myndi í land í aðildarferli Íslendinga og Króata þegar að Spánverjar láta af formennsku í sambandinu 30. júní 2010 en þeir taka við henni um áramót. Meira

Ræddu hagsmuni í sjávarútvegi

Mynd 447482

Miguel Angel Moratinos, utanríkisráðherra Spánar, átti fund með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í kvöld. Ráðherrarnir ræddu tvíhliða samskipti Íslands og Spánar sem eiga sér langa sögu og þörfina á frekari samræðu milli stjórnvalda í löndunum m.a. um hagsmuni í sjávarútvegsmálum. Meira

Ekki formlegar lánaviðræður við ESB

Lán frá ESB?

“Þetta er enn í skoðun innan ESB. Það hafa ekki farið fram samningaviðræður milli Íslands og ESB” Þetta hefur Forbes eftir Urði Gunnarsdóttir fjölmiðlafulltrúa Utanríkisráðuneytisins þegar leitað var viðbragða hjá henni við frétt Fréttablaðsins um að íslenskir embættismenn ættu í viðræðum við ESB um efnahagslegan stuðning sambandsins við Ísland. Meira

Rætt um efnahagslegan stuðning frá ESB

Mynd 503990

Íslenskir embættismenn eiga í viðræðum við Evrópusambandið um efnahagslegan stuðning sambandsins við Ísland. Frumkvæðið kom frá ESB í október, skömmu eftir bankahrunið. Meira

Hraðaspurningunum svarað á næstu dögum

Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB, afhenti Jóhönnu...

Tugir starfsmanna ráðuneyta og stofnana hafa hraðar hendur við að semja svör við spurningum ESB vegna aðildarumsóknar Íslands. Eiga einstök ráðuneyti að skila af sér í þessari viku. Meira

Kosið um Barroso á morgun

Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

Þingmenn á Evrópuþinginu munu kjósa á morgun um hvort Jose Manuel Barroso gegni áfram embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Frá því nýtt þing var kjörið í júní hafa margir þingmanna leitað logandi ljósi að öðrum frambjóðanda en enginn hefur boðið sig fram á móti sitjandi forseta, Barroso. Meira

Vilja ESB spurningar á íslensku

Mynd 509805

Bændasamtök Íslands hafa sent utanríkisráðuneytinu erindi og óskað eftir því að fá í hendur íslenska útgáfu spurningalista Evrópusambandsins sem fjallar um landbúnaðarmál eða varða félagsmenn BÍ sérstaklega. Í bréfi samtakanna segir að þetta sé nauðsynlegt svo kynna megi félagsmönnum spurningarnar. Meira

Hætta andstöðu við inngöngu Króatíu

Jadranka Kosor og Borut Pahor

Stjórnvöld í Slóveníu hafa lýst því yfir að þau muni ekki lengur standa í veginum fyrir því að Króatía fái inngöngu í Evrópusambandið. Tilkynnt var um þetta eftir fund forsætisráðherra ríkjanna, Borut Pahor og Jadranka Kosor. Jafnframt samþykktu þeir að láta ekki átján ára landamæradeilur ríkjanna hafa áhrif á aðildarviðræður Króata. Meira

Vill birta spurningalistana

Olli Rehn og Össur Skarphéðinsson ræða við blaðamenn. Báðir...

Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins er fylgjandi því að spurningalistinn sem hann hefur afhent íslenskum stjórnvöldum verði birtur í heild sinni fyrir almenningi. Á málfundi í Háskóla Íslands í morgun sagði hann það ákvörðun stjórnvalda í hverju umsóknarríki hvort spurningarnar séu birtar. Meira

Pressan: Gunnar Snorri stýrir viðræðum við ESB

Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra

Gengið verður frá því á næstu dögum að Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra Íslands í Kína og fyrrverandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, verði formaður sendinefndar Íslands í komandi samningaviðræðum við Evrópusambandið, að því er fram kemur á Pressunni. Meira

Rehn á fundum með ráðherrum

Olli Rehn og Össur Skarphéðinsson ræða við blaðamenn nú síðdegis.

Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, er nú hér á landi til að ræða við íslenska ráðherra um umsókn Íslands um aðild að sambandinu. Átti Rehn fund með Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, nú síðdegis, og hittir síðan forsætisráðherra og fjármálaráðherra.

Segir aðildarumsókn að ESB vera í uppnámi

Þorsteinn Pálsson

Þorsteinn Pálsson segir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu vera í uppnámi. „Enn hefur ekki verið gerð alvörutilraun til þess að fá stjórnarandstöðuflokkana með í þetta ferli. Meira

Búa sig undir spurningaflóðið frá ESB

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir ánægð er...

Ráðuneyti og ríkisstofnanir búa sig undir að svara fjölda mjög ítarlegra spurninga ESB vegna aðildarumsóknar Íslands. Stækkunarstjóri ESB kynnir sér stöðu mála hér í byrjun september. Meira

Ræddi Icesave við ráðherrana

 Urmas Paet, Eistlandi, Össur Skarphéðinsson, Carl Bildt,...

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti tvíhliða fundi með þátttakendum í utanríkisráðherra fundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja og fór þar yfir Icesave málið. Á fundinum fór Carl Bildt yfir áhersluatriði Svía sem forysturíkis í Evrópusambandinu. Einnig fjallaði hann um umsókn Íslands að ESB. Meira

Hafa náð botninum og vilja nú upp á við

 Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands

„Við myndum vilja að Evrópusambandið styrktist í norðri svo raddir norrænna þjóða verði öflugri innan sambandsins,“ segir Urmas Paet, utanríkisráðherra Eistlands, sem átti fund með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra á fullveldisdegi Eista í gær. Meira

„Snjallar raddir heyrast“

 Alexander Stubb, utanríkisráðherra Finnlands

„Ákvörðunin um lán var mjög mikilvæg því við trúum af öllum hug á samstöðu norrænna þjóða. Íslendingar virðast vinna að því að uppfylla skilyrði lánsins svo við höfum ekki yfir neinu að kvarta á þessu stigi,“ segir Alexander Stubb, utanríkisráðherra Finnlands. Meira

Afgangur á vöruskiptum á evru-svæðinu

Vöruskiptin voru hagstæð á evru svæðinu í júní

Afgangur af vöruskiptum ríflega tvöfaldaðist í aðildarríkjum myntbandalags Evrópu í júní. Þykir þetta enn eitt merkið um að efnahagslífið sé á réttri leið í þessum ríkjum. Í síðustu viku var greint frá því að hagvöxtur hefði ríkt í Þýskalandi og Frakklandi á öðrum ársfjórðungi. Meira

Ekki hagkvæmt gjaldmiðilssvæði

Seðlabanki Íslands.

Vafasamt er að Ísland geti talist hagkvæmt gjaldmiðilssvæði, að því er segir í nýbirtri samantekt sem Seðlabanki Íslands vann fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Þar kemur fram að meðan ekki hefur verið breytt yfir í annað gjaldmiðilsfyrirkomulag sé ráðlegast að efla viðbúnað Seðlabankans til þess að takmarka vöxt fjármálakerfisins. Meira

Gera sér ekki grein fyrir byrðinni

Icesave mótmælt við Alþingi

Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar og þingmaður Vinstri grænna, telur að óbreytt frumvarp um ríkisábyrgð vegna Icesave-samninganna yrði fellt á Alþingi með 33 gegn 31. Í samtali við Reuters-fréttastofuna segist hann ekki viss um að nágrannaþjóðir Íslands geri sér grein fyrir þeirri byrði sem samningarnir þýða fyrir komandi kynslóðir. Meira

Hannan bloggar um Ísland og ESB

Daniel Hannan

Daniel Hannan. þingmaður breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, fjallar um nýja skoðanakönnun, sem gerð var fyrir Andríki, á bloggi sínu á vef dagblaðsins Telegraph í gær. Segir hann að Íslendingar beri af öðrum þjóðum hvað varðar hugrekki og fleiri mannkosti. Segist hann fullviss um að Íslendingar muni aldrei láta lýðræði sitt af hendi með því að ganga í Evrópusambandið. Meira

Fleiri andvígir aðild að ESB

Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB)en hlynntir samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Andríki. Í sömu könnun kemur fram að meirihluti þeirra sem taka afstöðu, vildu fá þjóðaratkvæðagreiðslu um þá ákvörðun að Íslandi sæki um aðild að ESB. Meira

Algjör þáttaskil með hruninu segir Björn Bjarnason

Björn Bjarnason

„Algjör þáttaskil urðu í bankastarfsemi með hruninu í byrjun október 2008. Fráleitt er að láta eins og það, sem gerðist í aðdraganda hrunsins, eigi að lúta lögmálum eðlilegra bankaviðskipta. Ætli okkur verði ekki sagt, að hagsmunir „viðskiptalífsins“ séu í húfi? Ekki kæmi á óvart, að Viðskiptaráð Íslands ályktaði til stuðnings lögbanni á fréttir frá Kaupþingi," skrifar Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra á vef sinn í kvöld. Meira

Íslendingar kenni Hollandi og Bretlandi um allt slæmt

FT.com segir Íslendinga kenna Bretum og Hollendingum um...

Fréttavefur Financial Times birtir í dag frétt um viðbrögð Íslendinga og Breta við frestun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins á endurskoðun efnahagsáætlunar ríkisstjórnar Íslands. Segir í fréttinni að Bretar hafni því að hafa haft áhrif á ákvörðun sjóðsins, en því sé haldið fram á Íslandi að Bretar og Hollendingar standi á bak við hana. Meira

Vilja meiri samhug Íslendinga

El País þykir verst að það skuli ekki vera pólitísk eining...

Í leiðara spænska dagblaðsins El País segir að beiðni Íslands um inngöngu í ESB staðfesti að það sé eftirspurn eftir ESB og að það líti betur út utan frá en innan frá. Leiðarahöfundur fjallar lítið um fiskimið Íslands en óttast mest að íslenska þingið og þjóðin standi ekki heil á bakvið umsóknina. Meira

Brýnt að leysa Icesave-deilu

Frá blaðamannafundi Össurar og Lellouche í morgun.

Evrópumálaráðherra Frakklands, Pierre Lellouche, átti í morgun fund með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í Reykjavík en Lellouche er staddur hér í heimsókn. Lellouche sagði aðspurður að ekki væru nein bein tengsl milli ESB-umsóknar Íslands og Icesave-deilunnar en brýnt væri að leysa málið. Meira

Íslendingar vilja á methraða í viðræður

Ísland í hópinn? Mikið verk bíður íslenskrar stjórnsýslu...

Mörg dæmi eru um skemmri afgreiðslutíma en 14 mánuði á álitsgerð framkvæmdastjórnar ESB. Sérfræðingur Evrópumála segir bjartsýni að telja að álitsgerð verði lokið fyrir desember. Meira

Gagnrýna utanríkisráðherra ESB

Mynd 480652

Frjálslyndir hægrimenn í Hollandi (VVD) gagnrýna harðlega þá ákvörðun utanríkisráðherra Evrópusambandsríkjanna að hleypa umsókn Íslands um aðild að sambandinu áfram í gær. Telja þeir að ráðherrarnir hefðu átt að setja sem skilyrði að Ísland standi við Icesave-samkomulagið. Meira

Um 9 þúsund hafa ekki óskað eftir endurgreiðslu

Evrópusambandið, höfuðstöðvar, Brussel.

Um níu þúsund hollenskir sparifjáreigendur hafa ekki leitað eftir því að fá innistæður sínar endurgreiddar af reikningum Icesave þar í landi, samkvæmt frétt ANP fréttastofunnar. Flestir þeirra töpuðu lágum fjárhæðum þegar Landsbankinn fór í þrot. Samanlagt eiga þeir 233 þúsund evrur inn á Icesave-reikningum í Hollandi. Alls töpuðu hollenskir sparifjáreigendur 1,6 milljörðum evra á falli Landsbankans. Meira

Össur: „Diplómatískur sigur“Myndskeið

Fréttamynd

„Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga. Það var ekki sjálfgefið,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra varðandi aðildarumsókn Íslands. Meira

„Getum lifað án Evrópu“

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir í samtali við Deutche Welle í dag að hann telji ekki ólíklegt að Íslendingar verði orðnir aðilar að Evrópusambandinu eftir þrjú ár. Hann segir þó að ekki verði farið í viðræður með því hugarfari að Ísland komist ekki af án Evrópusambandsins. Meira

Ísland fær enga sérmeðferð

Olli Rehn

Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segir að Ísland fái enga flýtimeðferð inn í sambandið en ekki megi gleyma því að Ísland hafi þegar tekið upp stærstan hluta reglna ESB. Hann fagnaði um leið umsókn Íslendinga. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Brussel í dag. Meira

Vilja ekki að Ísland fái forgang

Mynd 503990

Þrátt fyrir að líklegt sé að umsóknarferli Íslands í ESB verði styttra en margra annarra ríkja þá voru einhverjir utanríkisráðherrar fljótir til að sannfæra ríki á Balkanskaganum sem hafa þegar sótt um aðild að umsókn Íslands muni ekki valda því að þeirra umsóknir fari aftar í röðina. Meira

ESB-umsókninni vísað áfram

Össur Skarphéðinsson ásamt Carli Bildt í síðustu viku.

Utanríkisráðherrar aðildarríkja ESB, sem hittust á fundi í Brussel í morgun, hafa samþykkt að vísa umsókn Íslands til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í erlendum fjölmiðlum, m.a. á fréttavef Bloomberg. Meira

Leiðin styttri fyrir Ísland

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhenti Carl Bildt...

Ísland mun ekki geta stytt sér leið í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, aö sögn Svía sem nú eru í forsæti í sambandinu. Þetta sagði Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar fyrir fund utanríkisráðherra ESB í Brussel í morgun. Hann sagði ljóst að leiðin væri styttri fyrir Ísland en ýmsa aðra. Meira

Vill fresta umsóknarferli ESB

Mynd 500609

„Ég hef þungar áhyggjur af samningsstöðu Íslands,“ segir Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann sagðist í samtali við RÚV vilja fresta aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Í ljósi beinna og óbeinna hótana Hollendinga, Breta og annarra aðildarríkja í garð Íslendinga. Meira

Ušackas heimsótti Alþingi

Vygaudas Ušackas, utanríkisráðherra Litháen ásamt Árna Þór...

Utanríkisráðherra Litháens, hr. Vygaudas Ušackas, átti í morgun fund með formanni og varaformanni utanríkismálanefndar, Árna Þór Sigurðssyni og Valgerði Bjarnadóttur, í Alþingishúsinu. Meira

Litháíska þingið styður aðild

Litháar styðja aðild Íslendinga að Evrópusambandinu.

Litháíska þingið samþykkti í dag samhljóða yfirlýsingu þar sem lýst er yfir fullum stuðningi við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og önnur aðildarríki ESB hvött til að gera slíkt hið sama. Meira

Economist: Líklegt að farið verði að dæmi Norðmanna

Mynd 504757

Fram kemur í grein Economist um aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu að fyrir liggi að leið Íslendinga inn í sambandið verði löng og torfær þrátt fyrir allar umræður um hugsanlega flýtimeðferð. Meira

Umsóknin á dagskrá á mánudag

Össur Skarphéðinsson og Carl Bildt, utanríkisráðherrar.

Stækkun ESB, og þar með aðildarumsókn Íslands, er á dagskrá ráðherrafundar sambandsins á mánudag. Össur Skarphéðinsson segir yfirgnæfandi meirihluta utanríkisráðherra sambandsins hafa tjáð stuðning við umsókn Íslands. Utanríkisráðherra Svíþjóðar segir af og frá að tengja umsóknina við Icesave-málið. Meira

Össur: Ísland hefur margt að bjóða ESB

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að Ísland hafi margt að bjóða Evrópusambandinu. „Það er að sjálfsögðu reynsla okkar og þekking hvernig eigi að stjórna náttúruauðlindum. Ekki aðeins fiskveiðiauðlindinni, heldur einnig hvað varðar endurnýjanlega orku,“ sagði Össur á blaðamannafundi í Stokkhólmi í morgun. Meira

Afhenti Svíum aðildarumsókn

Össur Skarphéðinsson ásamt Carli Bildt í Stokkhólmi í morgun.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra afhenti Carli Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu með formlegum hætti við hátíðlega athöfn sænska utanríkisráðuneytinu í Stokkhólmi í morgun. Meira

Finnsk þingnefnd hlynnt íslenskri aðild

Mynd 504703

Stórnefnd finnska þingsins, sem fer með mál tengd Evrópusambandinu, sagði eftir aukafund í gær að það væri hlynnt aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Meira

Hafði samband bæði við Breta og Hollendinga

Mynd 503990

Haft var eftir Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í fréttum Sjónvarpsins í kvöld að íslenska utanríkisráðuneytið hafi haft formlegt samband við bæði hollenska og breska utanríkisráðuneytið í morgun til að undirstrika að íslensk stjórnvöld telji fráleitt að tengja Icesave-málið við umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Meira

Litháar styðja ESB-aðildarumsókn Íslendinga

Vygaudas Usackas, utanríkisráðherra Litháen

Litháar hafa lýst yfir stuðningi við umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Vygaudas Usackas, utanríkisráðherra Litháen hringdi í Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í morgun og ræddi aðildarumsóknina. Usackas sagði að Íslendingar hefðu fyrstir þjóða viðurkennt sjálfstæði Litháen og Litháar vildu fyrstir þjóða lýsa stuðningi við ESB-umsókn Íslendinga. Meira

„Loftfimleikar til heimabrúks“

Steingrímur J. Sigfússon

„Mér finnst þetta algjörlega fráleitt. Það er mikill ábyrgðarhluti af ráðherra í ríkisstjórn í mjög viðkvæmu máli að fara út í svona loftfimleikaæfinga til heimabrúks,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, um ummæli Maxime Verhagen, utanríkisráðherra Hollands. Meira

Svarar Kristjáni Þór fullum hálsi

Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar, svarar gagnrýni Kristjáni Þór Júlíussyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, fullum hálsi á vef sínum í dag, en Kristján Þór gagnrýndi Björn Val harkalega í kvöldfréttum RÚV í gær fyrir að taka sér tveggja vikna leyfi frá þingstörfum til að fara á sjó. Meira

Ræðir við Bildt um ESB umsókn

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra heldur í dag til Stokkhólms þar sem hann mun eiga fund með Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar á morgun, fimmtudag. Mun hann ræða aðildarumsókn Íslendinga í Evrópusambandið við Bildt. Meira

Vilja ganga lengra en Verhagen

Maxime Verhagen.

Hollenskir fjölmiðlar fjalla í dag áfram um Icesave og möguleika á að það verði ekki samþykkt hér. Dagblaðið Volkskrant segir á vef sínum í dag að Verkamannaflokkurinn, Partij van de Arbeid, (PvdA) vilji ganga enn lengra heldur en utanríkisráðherra landsins sem ræddi við Össur Skarphéðinsson í gær. Meira

Þrýst á Íslendinga

Mynd 480652

Utanríkisráðherra Hollands, Maxime Verhagen, hringdi í dag í Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra og þrýsti á að Alþingi ljúki afgreiðslu Icesave-samkomulagsins og samþykki það. Greint er frá þessu í hollenskum fjölmiðlum í dag. Meira

„Aðildarferlið vel á veg komið"

Carl Bildt , utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, segir að aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu sé vel á veg komið vegna aðildar Íslands að evrópska efnahagssvæðinu. Þetta kemur fram á vef Bloomberg. Meira

Skuldatryggingarálagið á réttri leið

Mynd 179820

Kostnaður við að tryggja skuldabréf ríkissjóðs í evrum til 5 ára hefur lækkað um nærri 0,8 prósentur frá lokun markaða á miðvikudag. Minnkandi áhættufælni á mörkuðum á þar væntanlega nokkurn hluta að máli, en þó virðast fréttir af ESB-umsókn Íslands og nú síðast af væntu eignarhaldi bankanna einnig leika þar hlutverk, að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka. Meira

Lettar styðja Íslendinga

Mynd 503990

Utanríkisráðherra Lettlands, Maris Riekstins, fagnar aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu og lýsir sig reiðubúinn til þess að styðja við bakið og aðstoða Íslendinga í umsóknarferlinu. Lettar styðja það að Íslendingar gangi í ESB og vilja að umsókn þeirra verði afgreidd með hraði. Meira

Fjárfestar vissu að Seðlabankinn kæmi ekki til bjargar

Seðlabanki Íslands.

Evrópusambandsaðild hefði ein og sér ekki bjargað Íslandi frá hruninu síðastliðið haust. Heldur hrundi fjármálakerfið á Íslandi þar sem fjárfestar vissu að Seðlabanki Íslands myndi ekki koma til bjargar. Þetta kemur fram í grein á vef New York Times sem skrifuð er af þeim George Hay og Richard Beales. Meira

Fréttaskýring: Rúmlega tuttugu hafa skráð sig úr VG

Á þingflokksfundi VG

Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur nú komið því máli í gegnum þingið sem flokkurinn hefur haft hvað mesta andúð á allt frá því hann var stofnaður, umsókn um aðild að ESB. Því er spurt: Hvernig er stemningin í flokknum? Meira

Andsnúnir inngöngu Íslands

Mynd 503990

Kristilegir demókratar í Bæjaralandi (CSU), systurflokkur flokks Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, er andvígur því að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt frétt Süddeutsche Zeitung í dag. Meira

Leiðin getur orðið löng og erfið

Icesave-samkomulagið eða IceSlave-samkomulagið

Eftir að hafa samþykkt að sækja um aðild að Evrópusambandinu bíður Alþingi Íslendinga það verkefni að fjalla um Icesave-samkomulagið. Leiðin í ESB getur bæði reynst erfið og löng, skrifar Ásgeir Sverrisson í írska dagblaðið Irish Times í dag. Meira

Samráð verður víðtækt

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra væntir þess fastlega að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu (ESB) verði rædd á fundi ráðherraráðs ESB hinn 27. júlí næstkomandi. Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra afhenti umsóknina í Stokkhólmi í gær. Meira

Ísland á ekki að bíða lengur en til 2012

Mynd 503990

Líta má á nýlega atburðarás litla Íslands sem dæmisögu um alþjóðavæðingu. Í góðærinu hafi landið nýtt sér auðfengið fjármagn og losaralegt fjármálaregluverk sem byr í seglin á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hrunið hafi svo komið eins og fljóðbylgja yfir landið og hreinlega drekkt því í skuldum án þess að eiga björgunarbát. Meira

Bretarnir fagna ESB-umsókninni

Bresk stjórnvöld fagna umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Það svar fékkst frá fjölmiðlaskrifstofu breska utanríkisráðuneytisins í gær við fyrirspurn Morgunblaðsins um afstöðu Breta. Meira

Bjarni: Óheppilegt að ekki ríkir einhugur í forystunni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Bjarni Benediktsson

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að fullur trúnaður og traust ríki milli hans og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns flokksins. Hann segir óheppilegt að ekki ríki einhugur í forystu flokksins og vísar þar til þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins, sat hjá við atkvæðagreiðslu um Evrópumálin í gær, þvert á flokkslínur. Hann segir stöðu hennar þó ekki hafa veikst. Meira

Keppa Ísland og Króatía?

Keppni um að verða 28. aðildarríkið?

Ísland gæti fengið inngöngu í Evrópusambandið á mettíma en engin trygging er fyrir að landið fái inngöngu á undan öðru umsóknarlandi, Króatíu, hefur franska fréttastofan AFP eftir embættismönnum og sérfræðingum á þessu sviði. Meira

Búið að sækja um ESB-aðild

Mynd 503990

Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu hefur verið komið á framfæri við sænsk stjórnvöld sem fara nú með formennsku í ráðherraráði ESB. Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, gekk í dag á fund ráðuneytisstjóra sænska utanríkisráðuneytisins og afhenti umsókn Íslands. Meira

Björn furðar sig á stefnubreytingu Ögmundar

 Björn Bjarnason

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fjallar um samþykkt Alþingis í gær um að sækja um aðild að Evrópusambandinu á vef sínum. Segir hann að hefði því verið haldið fram í kosningabaráttunni, að Ögmundur Jónasson mundi samþykkja aðildarumsókn að ESB, er líklegt að Ögmundur hefði svarað af miklu offorsi og talið vegið að mannorði sínu. Ögmundur sagði hins vegar já við aðildarumsókn 16. júlí. Meira

Skuldatryggingarálag ríkisins lækkar

Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg

Viðbrögð við samþykkt umsóknar um aðild að Evrópusambandinu á Alþingi í gær hefur ekki haft merkjanleg áhrif á innlendum mörkuðum enn sem komið er, en erlendis hefur skuldatryggingarálag á ríkissjóð lækkað nokkuð. Meira

Aðild Íslands móðgun við Tyrki

Í greiningu viðskiptamiðstöðvar Aserbaídsjan segir að...

Væntanleg umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu vekur athygli víða og í dag birtist áhugaverð greining á málinu á vef viðskiptamiðstöðvar Aserbaídsjan. Þar er stuttlega fjallað um kosninguna á Alþingi og því haldið fram að fái Íslendingar inngöngu verði það stjórnmálaleg móðgun í garð Tyrkja. Meira

Staða Þorgerðar Katrínar veikist

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Pólitísk staða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þykir hafa veikst til muna í gær, þegar hún ákvað að sitja hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um ESB-aðildarumsókn. Meira

Erfiðar viðræður

Olli Rehn

Olli Rehn, sem fer með stækkunarmál sambandsins innan framkvæmdastjórnarinnar, fagnar ákvörðun Íslendinga og því að stækkun sambandsins nái hugsanlega brátt til norðvesturhorns Evrópu. Meira

Hefur ótvíræð áhrif í Noregi

Frá miðbæ Tromsø.

Umsókn Íslendinga um aðild að Evrópusambandinu mun hafa ótvíræð áhrif í Noregi og gefa Hægriflokknum tilefni til að setja Evrópumálin aftur á oddinn, að mati norska blaðamannsins Ingrid Skjøtskift, sem sérhæfir sig í Evrópumálum. Meira

Umsókn metin á staðlaðan hátt

Fredrik Reinfeldt forsætisráðherrra Svíþjóðar

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, fagnar þeirri ákvörðun Alþingis Íslendinga að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Meira

Ungir jafnaðarmenn fagna aðildarumsókn

Mynd 496582

Ungir jafnaðarmenn hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fagna fagna samþykki Alþingis fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Meira

Leyfir mönnum að kæla sigMyndskeið

Fréttamynd

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að málin hafi þróast Íslendingum í vil innan Evrópusambandsins og hann segist vera bjartsýnn á að við fáum að halda okkar hlut hvað auðlindir okkar snertir. Meira

Yfirlýsing forsætisráðherra um ESB

Jóhanna Sigurðardóttir er hún flutti stefnuræðu sína.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna samþykktar Alþingis um að gengið skuli til viðræðna við ESB. Meira

Fjölþætt sannfæring Myndskeið

Fréttamynd

Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segist hafa kosið samkvæmt sannfæringu sinni í kosningunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í dag og vísar á bug ásökunum um svipuhögg og flengingar innan flokksins. Meira

Hnappur inn á Evróupvef

Sjónvarp

  • Össur: „Diplómatískur sigur“

    „Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga Horfa

  • Leyfir mönnum að kæla sig

    Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að málin hafi þróast Íslendingum í vil innan Evrópusambandsins og hann segist vera bjartsýnn á að við fáum að halda okkar hlut hvað auð Horfa

  • Fjölþætt sannfæring

    Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segist hafa kosið samkvæmt sannfæringu sinni í kosningunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í dag og vísar á bug ásökunum um svipuhögg og fle Horfa

  • Blendnar tilfinningar

    Steingrímur J. Sigfússon sagði að það bærðust blendnar tilfinningar í hans brjósti að lokinni kosningu þar sem hann studdi þá tillögu að farið yrði í aðildarviðræður við ESB Horfa

  • Evrópusinnar ættu að hafa áhyggjur

    Bjarni Benediktsson sagði að Evrópusinnar ættu að hafa áhyggjur af öllum þeim fyrirvörum og varnöglum sem slegnir hafa verið í upphafi umsóknarferlisins inn í Evrópusambandið. Horfa

Nýjustu skýringarmyndir

Mikilvæg ártöl

Rúm sextíu ár eru frá undirritun Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Með samþykkt Lissabon-sáttmálans verður stigið stórt skref í átt til samræmdrar mannréttindastefnu í Evrópu.

Atkvæðavægi aðildarríkka

Ísland hefði þrjú atkvæði í ráðherraráði ESB, líkt og Malta.

Skoðanir Evrópubúa í ESB haust 2008

Forvitnilegt er að grennslast fyrir um skoðanir Evrópubúa, en framkvæmdastjórn ESB stendur reglulega fyrir skoðanakönnun meðal íbúa aðildarríkja sambandsins.

Mögulegur tímarammi aðildarumsóknar

Ýmsar vangaveltur eru uppi um hversu langan tíma það tæki fyrir Ísland að fá aðild að ESB. Hér eru drög í þá veru, sem bárust í hendur blaðamanns.

Yfirlit yfir aðgerðir ESB á sviði utanríkis- og öryggismála

ESB hefur einkum sinnt borgaralegum verkefnum á sviði utanríkis- og öryggismála. Smám saman hefur hernaðarlegum verkefnum fjölgað, það nýjasta snýst um baráttu gegn sómölskum sjóræningjum. Verkefnin snúast um friðargæslu og uppbyggingu. ESB er ekki hernaðar- eða varnarbandalag.

Skoðanir annarra

Lárus L. Blöndal og Stefán Má Stefánsson

Í hvaða liði eru stjórnvöld?

HINN 26. febrúar sl Meira

Árni Þór Sigurðsson

Hvers vegna sögðu Norðmenn NEI?

Frændur okkar Norðmenn hafa tvívegis efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ESB, (áður Evrópubandalaginu), árin 1972 og 1992 Meira

Þorsteinn Ásgeirsson

“Kreppan” og ESB

BANKAHRUNIÐ og stöðvun útlána hefur sett stórt strik í fjárfestingarfyllirí landsmanna. Óraunhæft og brjálæðislegt húsnæðisverð hefur sigið á höfuðborgarsvæðinu og á eftir að síga enn Meira

Jóhanna Jónsdóttir

Evrópusamstarf sparar vinnu og peninga

Þátttaka í Evrópusamstarfi hefur sparað íslensku stjórnsýsluna umtalsverða vinnu og fjármuni við mótun löggjafar, t.d. á sviði umhverfismála. Meira

Lýður Árnason

Kæru landsfundarmenn

Aðildarumsókn í ESB er draumur samfylkingar. Sjálfstæðismenn hafa fram að þessu ekki deilt þessum draumi. Meira

Charles Wyplosz

Athugasemd við grein 32 hagfræðinga

  Á ÍSLANDI fara nú fram mikilvægar umræður um framtíðarskipan gjaldeyrismála. Ég hef fengið tækifæri til að fylgjast lítillega með því sem rætt hefur verið og ritað Meira

Árni Johnsen

Örlög Íslands öruggust í höndum Íslendinga

Íslenskar tilfinningar munu aldrei þola forsjá  annarra þjóða Meira

Kristján Vigfússon

Efnahagsleg- og pólitísk staða Íslands

Ísland og íslendingar hafa fundið á eigin skinni hvernig það er að vera einir og hálf umkomulausir í samfélagi þjóðanna síðast liðna mánuði Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Hvert yrði vægi Íslands innan ESB?

Því er gjarnan haldið fram af þeim sem vilja ganga í Evrópusambandið að innlimun í sambandið sé nauðsynleg til þess að við getum haft áhrif innan þess Meira

Ársæll Valfells og Heiðar Guðjónsson

Einhliða upptaka er lausn á gjaldeyrisvanda

Upptaka evru með inngöngu í ESB tæki of langan tíma, a.m.k. fimm ár. Því ber að íhuga vandlega einhliða upptöku gjaldmiðilsins. Meira

Elliði Vignisson

Eru aðildarviðræður nauðsynlegar til að kanna hvað ESB hefur upp á að bjóða?

Staðreyndin er sú að allir sem vilja geta séð hvað ESB hefur upp á að bjóða. Til þess þarf ekki aðildarviðræður. Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Á evrusvæðið framtíðina fyrir sér?

Tilkoma evrunnar var fyrst og fremst hugsuð sem stórt samrunaskref innan Evrópusambandsins. Tilgangurinn var öðru fremur pólitískur en ekki efnahagslegur, þ.e Meira

Axel Hall, Ásgeir Daníelsson, Ásgeir Jónsson, Benedikt Stefánsson, Bjarni Már Gylfason, Edda Rós Kar...

Einhliða upptaka evru er engin töfralausn

Íslendingar glíma nú við afleiðingar gjaldeyris- og fjármálakreppu. Gjaldeyriskreppan er í raun enn óleyst en úrlausn hennar slegið á frest með upptöku hafta á fjármagnsviðskiptum Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Er EES-samningurinn orðinn úreltur?

Ekkert bendir til þess að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) sé orðinn úreltur þó ýmsir hafi vissulega orðið til þess í gegnum tíðina að halda því fram Meira

Jóhanna Jónsdóttir

EES felur ekki í sér hefðbundið neitunarvald

EES-samningurinn felur ekki í sér neiturnarvald miðað við hefðbundnar skilgreiningar á neitunarvaldi ríkja innan alþjóðastofnanna. Meira

Davíð Þór Björgvinsson

Fullveldi og framsal valdheimilda: Samanburður á ESB og EES

Hér verður leitast við að skýra hvernig álitaefni um framsal ríkisvalds (fullveldis) og þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá horfa við með ólíkum hætti gagnvart Evrópusambandinu (ESB) og Evrópska efnah Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Getum við rekið þá?

Getum við rekið þá sem stjórna landinu okkar? Þetta er alger grundvallarspurning þegar rætt er um lýðræðið. Meira

Hjörleifur Guttormsson

ESB-aðild, evra og atvinnuleysi

Þrautalendingin til að fullnægja evru-skilyrðum yrði aukið atvinnuleysi langt yfir þau mörk sem hér hafa ríkt eða talist ásættanleg undanfarna áratugi Meira

Skúli Helgason

Samstaða um Evrópu

Þess vegna er lykilatriði að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, jafnt þeirra sem eru hlynntir aðild og mótfallnir komi að mótun samningsmarkmiðanna. Meira

Þorvaldur Jóhannsson

Erum við skák og mát ? Átt þú ekki næsta leik?

 Á NÝBYRJUÐU ári velta margir því fyrir sér, hverra kosta er völ fyrir lýðveldið Ísland í kjölfar bankahrunsins mikla. Hverjum er um að kenna? Meira

Andrés Pétursson

Fagna liðsinni formanns LÍÚ

Evrópusambandsaðild og upptaka evru er raunhæf leið sem getur aðstoðað okkur að halda uppi samkeppnishæfi þjóðarinnar. Meira

Engilbert Ingvarsson

Gegn umsókn í ESB á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins

Fulltrúar á Landsfundi eiga ekki, nauðbeygðir af áróðri ESB-trúarspekinga, að samþykkja umsókn í Evrópusambandið. Meira

Daniel Hannan

Áskorun til Íslendinga

Innganga í ESB fæli í sér algera örvæntingu, rétt eins og raunin var í tilfelli okkar Breta. Meira

Pálmi Jónsson

Góðir íslendingar, er EBS lausn?

SKÚLI Thoroddsen ritar athyglisverða grein í Morgunblaðið þann 14. des sl. Lokaorð greinarinnar eru; „að ekkert sé að óttast þó að af aðild Íslands verði….“ Hvar er þá fullveldi Íslands komið? Meira

Tengt efni