85,5% landsmanna skráð í þjóðkirkjuna

Þann 1. desember á síðasta ári voru 85,5% landsmanna skráð í þjóðkirkjuna en fyrir áratug var þetta hlutfall 91,8%, að sögn Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði hlutfall íbúa í fríkirkjusöfnuðunum þremur, Fríkirkjunni í Reykjavík, Óháða söfnuðinum og Fríkirkjunni í Hafnarfirði, úr 3,2% í 4,5%.

Hagstofan segir, að skráðum trúfélögum hafi fjölgað talsvert á undanförnum árum. Skráð trúfélög utan þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða eru nú 21 en voru 11 fyrir 10 árum. Þessum trúfélögum tilheyra 4,6% íbúa, samanborið við 2,6% árið 1994. Kaþólska kirkjan er þeirra fjölmennust en þar hefur meðlimum fjölgað um meira en helming frá árinu 1994, úr 2484 í 5775. Árið 2004 tilheyrðu því 2% þjóðarinnar kaþólsku kirkjunni samanborið við 1% árið 1994.

Hvítasunnusöfnuðurinn er næst stærsta trúfélagið, utan þjóðkirkju og fríkirkjusafnaða. Þar eru meðlimir nú 1800 samanborið við 1105 árið 1994 (0,6% þjóðarinnar 2004, samanborið við 0,4% árið 1994). Önnur trúfélög hafa innan við 1000 meðlimi og í engu þeirra er hlutfall meðlima yfir 0,3% af íbúafjölda.

Til óskráðra trúfélaga og með ótilgreind trúarbrögð heyrðu 2,7% þjóðarinnar samanborið við 1% árið 1994. Utan trúfélaga voru 2,4% samanborið við 1,4% árið 1994.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert