Skaftárhlaup náði hámarki við Sveinstind í morgun

Ferðamenn fylgdust með örum vexti í Skaftá í gær.
Ferðamenn fylgdust með örum vexti í Skaftá í gær. ÞÖK

Skaftárhlaup náði hámarki við Sveinstind í morgun klukkan 4:15 og var rennslið þá 720 rúmmetrar á sekúndu. Rennsli Skaftár við Kirkjubæjarklaustur var stöðugt kl. 9 í morgun og var þá 114 rúmmetrar á sekúndu. Rennsli Eldvatns við Ása var enn að aukast kl. 9 í morgun og var þá 370 rúmmetrar á sekúndu.

Búast má við að rennsli í byggð nái hámarki síðdegis í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka