Tom Cruise hefur hlotið viðurkenningu fyrir að hafa gefið Vísindakirkjunni meiri peningar en nokkur hefur áður gert. Cruise er meðlimur í þessari umdeildu kirkju og gaf henni sem svarar rúmlega 217 milljónum króna.
Unnusta Cruise, Katie Holmes, sem er barnshafandi, var við hlið hans þegar hann tók við viðurkenningunni í aðalbækistöð kirkjunnar í bænum East Grinstead í Bandaríkjunum.
Var parinu tekið með dynjandi lófaklappi, en meðal gesta voru John Travolta og kona hans, Kelly Preston. Haft var eftir öðrum meðlim kirkjunnar að það væri gott til þess að vita að Holmes væri nú gengin í söfnuðinn.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Cruise hlýtur viðurkenningu fyrir framlag sitt til Vísindakirkjunnar. Í fyrra fékk hann viðurkenningu fyrir að gefa kirkjunni sem svarar rúmum 150 milljónum króna.