Lagadeild HR tekur þátt í alþjóðlegri gerðardómskeppni

Keppnislið lagadeildar Háskólans í Reykjavík, skipað sjö meistaranemum, hélt til Vínarborgar í vikunni til þátttöku í alþjóðlegri gerðardómskeppni sem ber nafnið Willem C. Vis International Commercial Arbitration Moot. Lagadeild HR er fyrst íslenskra lagadeilda til að taka þátt í keppninni, sem haldin er árlega í Vínarborg og Hong Kong, með þátttöku keppnisliða frá um 200 lagadeildum, víðs vegar að úr heiminum.

Tilgangurinn með kepninni er að hvetja laganema til náms á þeim réttarsviðum sem helst reynir á í alþjóðaviðskiptum og þjálfa þátttakendur í meðferð alþjóðlegra gerðardómsmála.

Í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík segir, að undirbúningur undir keppnina sé verulegur og sé þátttaka metin til eininga í námi. Þátttakendur fái til meðferðar álitaefni sem lúti að ágreiningi um alþjóðaviðskipti með vöru. Hvert keppnislið þurfi að semja og leggja fram bæði sóknar- og varnarskjöl og flytja málið a.m.k. fjórum sinnum í sókn og vörn fyrir alþjóðlegum gerðardómi, skipuðum sérfræðingum á sviði gerðardómsmeðferða. Öll skjalagerð og málflutningur fer fram á ensku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert