Maður var keyrður niður í vitna viðurvist á Amager í Kaupmannahöfn í dag. Upp úr hádeginu í dag urðu margir vegfarendur vitni að því að vísvitandi var keyrt á mann á Sundholmsvej. Maðurinn hékk á framenda bílsins sem hélt för sinni áfram eigi að síður. Þegar maðurinn féll síðan í götuna sáu vitni hvernig sparkað var í hann og hann sleginn. Maðurinn lést af sárum sínum fyrir skömmu á sjúkrahúsi.
Ritzau fréttastofan skýrði frá því að farið hefði verið með fólk sem varð vitni að ódæðinu á sjúkrahús í áfallahjálp.
Kaupmannahafnarlögreglan rannsakar málið sem morðtilraun og er talið líklegt að ákeyrslan hafi verið gerð í hefndarskyni.