Lögreglan í Hafnarfirði framkvæmdi í gær, sunnudag, húsleit í iðnaðarhúsnæði í bænum, þar sem umfangsmikil kannabisræktun fór fram. Hald var lagt á um 170 kannabisplöntur og mun stærsta kannabisplantan hafa verið um 190 sm há. Þá voru haldlögð nokkur kíló af niðurskornu marijúana, en ekki er búið að vigta fíkniefnin. Gera má ráð fyrir að um sé að ræða á annan tug kílóa af marijúana.
Tveir menn voru handteknir í iðnaðarhúsnæðinu. Hafa þeir verið yfirheyrðir í gær og í dag vegna málsins. Rannsókn málsins er haldið áfram, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Við aðgerðina naut lögreglan í Hafnarfirði aðstoðar fíkniefnalögreglumanns úr Kópavogi sem og sérsveitar ríkislögreglustjórans.