Hamar framlengir samning við Ristic

f.v. Valgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Hamars, Boban Ristic, þjálfari, og …
f.v. Valgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnudeildar Hamars, Boban Ristic, þjálfari, og Hjörtur Sveinsson, formaður Knattspyrnudeildar Hamars. Knspdeild Hamars

Knattspyrnudeild Hamars í Hveragerði hefur framlengt samning sinn við Boban Ristic þjálfara til ársins 2010. Undir stjórn Ristic vann Hamar sér sæti í 2. deild Íslandsmótsins á nýliðinni leiktíð sem er besti árangur félagsins.

Þá eru í gangi viðræður við þrjá erlenda leikmenn um að spila með liðinu næsta tímabil sem og nokkra sterka innlenda leikmenn sem munu án efa styrkja og breikka þann góða hóp leikmanna sem fyrir er hjá Hamri, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Knattspyrnudeild Hamars.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert