Einar skoraði sex mörk í sigri Flensburg

Einar Hólmgeirsson skorað 6 mörk fyrir Flensburg í kvöld.
Einar Hólmgeirsson skorað 6 mörk fyrir Flensburg í kvöld. Brynjar Gauti

Einar Hólmgeirsson skoraði 6 mörk fyrir Flensburg og Alexander Petersson eitt þegar liðið rótburstaði Wetzlar, 37:20, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld. Flensburg er með 19 stig í 2.-4. sæti ásamt Hamburg og Nordhorn. Þá vann Lemgo sigur á Balingen, 30:28. Logi Geirsson lék ekki með Lemgo vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert