Harður árekstur á Akureyri

Mikil hálka var á götum Akureyrar í dag.
Mikil hálka var á götum Akureyrar í dag. mbl.is/þorgeir Baldursson

Árekstur varð á ljósunum á mótum Þingvallastrætis og Mýrarvegar á Akureyri í kvöld. Engin slys urðu á fólki en annar bílanna er að sögn sjónarvotta ónýtur. Mikil hálka var í bænum í dag og þykir líklegt að hún hafi átt þátt í þessum árekstri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert