Ungur maður alvarlega slasaður eftir bílslys

Frá slysstað á Kambabrún.
Frá slysstað á Kambabrún. mbl.is/Sverrir

Ungur maður liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítala háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík eftir í bílslys í Kömbunum, ofan við Hveragerði, í dag. Að sögn vakthafandi læknis er maðurinn mjög alvarlega slasaður, með fjöláverka, þ.e. með innvortis áverka og beinbrot. Maðurinn, sem er þrítugsaldri, verður á gjörgæsludeild í nótt og er líðan hans eftir atvikum.

Hinn slasaði kastaðist út úr bílnum þegar hann valt út af veginum í Kömbunum klukkan 15.30 í dag. Hann var einn í bílnum á austurleið. Tildrög slyssins eru óljós.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert