[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Innlent | Morgunblaðið | 20.9.2004 | 05:30

Verkfall eykur líkur á vanlíðan og frávikshegðun

Kennaraverkfall mun koma verst niður á þeim börnum sem standa höllum fæti auk þess sem það eykur almennt líkur á frávikshegðun barna, að mati Ingu Dóru Sigfúsdóttur, doktors í félagsfræði.

„Skólinn leikur fyrst og fremst lykilhlutverk í menntun og það er auðvitað ótrúlega slæmt að þau missi úr þennan námstíma. Hitt er að við vitum að skólinn leikur í nútímasamfélagi alveg óskaplega stórt hlutverk í félagslegu taumhaldi. Við sjáum það í rannsóknum okkar að þessar helstu stofnanir samfélagsins, þ.ám. skólinn, draga úr líkum á andlegri vanlíðan, frávikshegðun og annarri óæskilegri hegðun. Það segir sig sjálft að ef þau missa úr skóla og missa þennan mikilvæga þátt úr lífi sínu þá aukast líkur á brottfalli, frávikshegðun og andlegri vanlíðan.“

Mikilvægt sé að foreldrar haldi krökkunum við námsefnið ef til verkfalls kemur og „passi upp á rytmann þeirra sem er þeim svo mikilvægur í daglega lífinu og passi upp á að þau séu undir eftirliti ábyrgra aðila.“

Sölumenn eiturlyfja eiga greiðari aðgang að börnum

Gunnar Gíslason, deildarstjóri skóladeildar Akureyrabæjar, segir engan vafa leika á því að meiri hætta skapist á að sölumenn eiturlyfja eigi greiðari aðgang að krökkum í verkfalli, ekki síst ef þau snúi sólarhringnum við og séu mikið úti við á kvöldin.

Leifar af hassefnum fundust nýverið í þvagi tveggja 12 ára grunnskólabarna í bænum og segir Gunnar að þótt um tvö einangruð tilvik sé að ræða veki það ákveðinn ugg og bæjarbúar "séu á tánum" vegna þessa.

„Það er á ábyrgð foreldra að fylgjast vel með krökkunum, með hverjum þau eru, hvar þau eru og ekki síst að halda sig við löglegan útivistartíma, því eftir því sem ég fæ best vitað þá gerast flest af þessum brotum eftir að löglegum útivistartíma lýkur.“

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag