
Dettifoss og Týr í ólgusjó austur af landinu í dag. mynd/Landhelgisgæslan
Dettifoss og varðskip halda sjó austur af landinu
Varðskipin Týr og Ægir eru ásamt Dettifossi um 20 sjómílur austur af mynni Reyðarfjarðar. Týr var byrjaður að draga Dettifoss áleiðis til Reyðarfjarðar en um klukkan 16 í dag slitnaði taugin og hefur ekki tekist að koma taug í Dettifoss aftur en vont veður er á svæðinu, 26 metrar á sekúndu, og komið niðamyrkur. Samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð Landhelgisgæslunnar verður ekki verði reynt að koma taug yfir í Dettifoss á ný fyrr en á morgun.

Stýrisbúnaður Dettifoss, skips Eimskipafélagsins, bilaði um klukkan 20 í gærkvöldi þegar skipið var um 8 sjómílur austur af Eystrahorni en hluti stýrisblaðs skipsins virðist hafa dottið af.
Varðskipið Týr kom að Dettifossi um kl. 22 í gærkvöldi. Taug var komið í Dettifoss en hún slitnaði kl. 23:37. Um tvöleytið var aftur búið að koma taug í Dettifoss og hafist handa við að draga hann í átt til Eskifjarðar. Illa gekk að snúa Dettifossi vegna þyngdar skipsins. Um kl. 1:51 slitnaði línan á milli skipanna.
Klukkan 4:30 óskaði Týr eftir aðstoð varðskipsins Ægis en þá hafði tekist að koma taug í Dettifoss að nýju en ekkert gekk að snúa skipinu. Ægir var kominn á svæðið kl. 10 í morgun. Tý tókst að draga Dettifoss af stað og kl. 14 voru skipin á leið til Reyðarfjarðar á 2,5 sjómílna hraða. Tý gekk erfiðlega að stjórna Dettifossi og þess vegna var taug sett á milli varðskipsins Ægis og varðskipsins Týs. Það tókst kl. 15:40. Tuttugu mínútum síðar hafði taugin milli Dettifoss og Týs slitnað. Skipin voru þá stödd 28 sjómílur austur af Breiðdalsvík.
Þrettán manns eru í áhöfn Dettifoss og höfðust þeir allir vel við að sögn Halldórs V. Guðmundssonar skipstjóra á Dettifossi þrátt fyrir leiðinda velting. Dettifoss, sem er 14.664 brúttótonn að stærð, er fulllestaður af gámum. Skipið var á leið frá Reykjavík til Eskifjarðar þegar bilunin varð. Samkvæmt upplýsingum frá Eimskip verður unnið að könnun á skemmdum á Dettifossi á Eskifirði og að henni lokinni verður tekin ákvörðun um hvar viðgerð verður framkvæmd.
Til baka








Senda inn efni
