
Bush með íþróttamönnunum í gærkvöldi. Reuters
Forsetahjónin gáfu Bush íslenskan lax og skyr í afmælisgjöf
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú sátu í gær kvöldverð í Hvíta húsinu í boði George W. Bush, forseta Bandaríkjanna og Lauru Bush forsetafrúar. Forseti Íslands færði Bush að gjöf íslenskan lax og skyr í tilefni af sextugsafmæli forsetans fyrir nokkrum dögum, en sérstakt átak hefur verið gert undanfarið í Bandaríkjunum til að koma á framfæri íslenskum afurðum.
Kvöldverðurinn var helgaður starfi Special Olympics, íþróttastarfi í þágu andlega fatlaðra einstaklinga, og tileinkaður afmæli Eunice Kennedy Shriver, stofnanda Special Olympics og systur John F. Kennedy fyrrum forseta Bandaríkjanna. Tólf andlega fatlaðir íþróttamenn sem náð hafa sérstökum árangri í íþrótt sinni sátu kvöldverðinn.
Forseti Íslands færði Bush að gjöf íslenskan lax og skyr í tilefni af sextugsafmæli forsetans fyrir nokkrum dögum, en sérstakt átak hefur verið gert undanfarið í Bandaríkjunum til að koma á framfæri íslenskum afurðum.

Bush Bandaríkjaforseti og Laura eiginkona hans, Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri kaliforníu og Maria Shriver eiginkona hans við hátíðarkvöldverð í Hvíta húsinu í Washington í gærkvöldi. AP
Kvöldverðinn sátu m.a. forystumenn úr bandarískum stjórnmálum og áhrifamenn í bandarísku fjámála- og atvinnulífi, þingmenn, æðstu embættismenn Hvíta hússins og fjölskylda Eunice Kennedy Shriver, m.a. dóttir hennar Maria Shriver, eiginmaður hennar Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, og Edward Kennedy öldungadeildarþingmaður.
Meðal annarra öldungadeildarþingmanna má nefna Ted Stevens, aldursforseta Repúblikana í Öldungadeildinni, og Tom Harkin, einn helsta áhrifamann Demókrata.
Forseti Íslands mun í dag eiga fundi með bandarískum þingmönnum og stjórnendum Special Olympics, m.a. um heimsleikana sem haldnir verða í Shanghai í Kína á næsta ári, en nokkrir kínverskir áhrifamenn sátu einnig kvöldverðinn. Frá þessu segir í tilkynningu frá skrifstofu forsetans.
Til baka







Senda inn efni

