Innlent | mbl.is | 19.12.2006 | 06:27
Erlendir ferðamenn á sumardekkjum afþökkuðu aðstoð björgunarsveitarmanna
Björgunarsveitin Hérað var kölluð út fyrr í gærkvöldi vegna tveggja bíla sem voru í vandræðum við Axarafleggjarann á Breiðdalsheiði. Rétt fyrir klukkan hálf tíu fóru björgunarsveitarmenn af stað og komu að bílunum rúmum hálftíma síðar.
Í ljós kom að bílarnir voru á sumardekkjum þrátt fyrir að fljúgandi hálka væri á svæðinu og allhvasst. Fólkið í bílunum, sem var erlent, neitaði allri aðstoð og kvaðst ætla gista í bílunum í nótt. Við svo búið hélt björgunarsveitin heim á leið.
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
Til baka
Innlent — Fleiri fréttir
Í dag
19:28
Hvalaleikir á Faxaflóa
17:27
„Enginn samningsvilji“
16:34
Íbúðaverð lækkar
15:09
900 kílóa þungur hákarl
14:39
Nóg til af bóluefni
14:19
Icesave á ís
12:21
Formenn ræða um Icesave
10:30
Alversti veturinn
10:08
Gagnrýna umfjöllun LÍÚ
09:49
Harður árekstur
09:19








Senda inn efni
