
Skötuveisla Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal var haldin í gær. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson
Skatan sjaldan verið betri en núna
„Skatan hefur sjaldan verið betri og stemmningin í salnum var frábær," segir Gestur Guðjónsson, yfirmaður þjónustustöðvar Jarðborana, en undanfarin ár hafa starfsmenn fyrirtækisins eldað skötu og borðað saman í vélasal fyrirtækisins á Eirhöfða í Reykjavík.
Gestur segir að upphaflega hafi hugmyndin verið sú að starfsmenn þjónustudeildar elduðu skötu fyrir sig en aðrir hafi slegist í hópinn og stöðugt hafi fjölgað í hópnum. "Nú mættu rúmlega 80 manns," segir hann um hádegisveisluna í gær.
Að sögn Gests skapast alltaf sérstök stemmning í skötuveislunni í vélasalnum. "Við þrífum salinn hátt og lágt, leigjum borð og stóla og byrjum að elda upp úr hálf tíu um morguninn," segir hann.
Forskot tekið á skötusæluna á Ísafirði
Reikna má með að nokkuð margir hafi snætt skötu og meðlæti í gær. Til dæmis var hefðbundin gómrömm skötuveisla Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal haldin í gær á síðasta vinnudegi fyrir jól. Hraðfrystihúsið er eitt þeirra fyrirtækja sem bjóða starfsmönnum og ýmsum velunnurum árlega til skötuveislu í kaffisalnum. Flestir voru hæstánægðir með að geta lagt sér þetta lostæti til munns en þó voru sumir sem leist ekki eins vel á þennan ilmþunga málsverð. Bragðsterkur rétturinn rann ljúflega niður hjá þeim sem fengu sér og tóku þar með smá forskot á sæluna fyrir daginn í dag, sjálfa Þorláksmessu.Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.
Til baka








Senda inn efni