Söluskáli KHB lækkaði ekki verð í morgun
Bloggað um fréttina
-
GKKeypti...
-
Stefán Friðrik StefánssonFylgst vel með verðlagi eftir skattabreytingar
-
Sigurður Elvar ÞórólfssonKleinur hríðlækka
-
GúrúinnVaskur stjóri verslunar
-
Heimir EyvindarsonFrétt dagsins
-
Heimir L FjeldstedVerslum ekki þar.
-
Snorri BergzSÍS lifir!
Í ljós kom í hádeginu að verð hafði ekki lækkað á neinum matvælum í grillskála Söluskála KHB á Egilsstöðum þrátt fyrir lækkun virðisaukaskatts. Þetta kemur fram á fréttavefnum austurlandid.is Þegar kassakvittanir fyrir máltíð í gær og í dag eru bornar saman kemur í ljós að Kaupfélag Héraðsbúa hefur lækkað hlutfall virðisaukaskatts skv. lagabreytingu niður í 7% en haldið verði óbreyttu söluvöru sinni. Þetta kemur fram á fréttavefnum Austurlandið.is.
„Því er ekki hægt að álíta annað en að Kaupfélag Héraðsbúa taki þá peninga neytenda sem átti að skila sér í lækkuðu vöruverði og stingi þeim í sinn eigin vasa.
Kaupfélag Héraðsbúa virðist því hafa notað tækifærið og hækkað álagningu sína í Söluskála KHB á athyglisverðum tímapunkti.
Skorað er á neytendur á Austurlandi að fylgjast vel með því að fyrirtæki fjórðungsins slái ekki eign sinni á þá peninga sem ætlaðir eru til hagsbóta fyrir neytendur. Fréttaskot um verðhækkanir er hægt að senda á austurlandid@austurlandid.is," að því er segir á austurlandid.is
Til baka







Senda inn efni

