[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Hvassaleiti, 103 Reykjavík Hvassaleiti Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Innlent | mbl.is | 25.5.2007 | 09:14

Náttúruverndarsamtökin segja Landsvirkjun enn hafa kverkatak á Þjórsárverum

Náttúruverndarsamtök Íslands segja ummæli leiðtoga ríkisstjórnarinnar benda til þess, að ekki sé samkomulag innan stjórnarinnar um stækka friðland Þjórsárvera til suðurs þannig að Norðlingaölduveita verði úr sögunni. Þetta hljóti óhjákvæmilega að draga verulega úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar í náttúruverndarmálum. Af þessu leiði að Landsvirkjun muni enn hafa kverkatak á Þjórsárverum í umboði Sjálfstæðisflokksins.

Á heimasíðu Náttúruverndarsamtakanna segir, að ekki verði annað séð en yfirlýsingar forustumanna stjórnarflokkana um stækkun friðlandsins í Þjórsárverum stangist á. Annars vegar hafi formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sagt í Kastljósi s.l. miðvikudagskvöld: „Það er algjörlega skýrt í mínum huga að það er ekki hægt að fara í Norðlingölduveitu.” Með þessum orðum hafi hún skýrt þá stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að stækkun friðlandsins í Þjórsárverum verði tryggð þannig að það nái yfir hið sérstaka votlendi veranna.

Geir Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði hins vegar í fréttum RÚV í gærkvöld að ekkert í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kvæði sérstaklega á um að stöðva áform Landsvirkjunar um Norðlingaölduveitu. Ennfremur hafi forsætisráðherra sagt: „Flokkarnir hafa haft ólíka stefnu í þessu máli. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki viljað slá þetta mál endanlega af, að svo komnu máli, þó að það sé ekki á dagskrá alveg á næstu árum. Samfylkingin hefur viljað fara aðra leið í því og stefnuyfirlýsingin ber vott um að fólk hefur verið að reyna að ná sameiginlegri niðurstöðu.”

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær