Álver á landfyllingu?

Höfuðstöðvar Alcan í Montreal.
Höfuðstöðvar Alcan í Montreal. Reuters
Eftir Silju Björk Huldudóttur

silja@mbl.is

Alcan á Íslandi kannar nú þann möguleika að stækka álver sitt í Straumsvík með því að byggja landfyllingu út í sjó. Hugsanlegt er að slík landfylling gæti tengst fyrirhugaðri uppbyggingu og hafnarframkvæmdum hjá Hafnarfjarðarhöfn. Þetta segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, en hann átti í gær fund með erlendum og innlendum ráðamönnum Alcan, þeirra á meðal Rannveigu Rist, forstjóra Alcan á Íslandi, og Michel Jacques, forstjóra Alcan Primary Metal Group.

Spurður hvernig sér lítist á fyrrgreinda hugmynd segir Lúðvík fulla ástæðu til að skoða hana. "Mér finnst skipta máli að Alcan haldi áfram starfsemi hérna," segir Lúðvík og tekur fram að hann telji það ekki inni í myndinni eins og málin standi núna að Alcan flytji starfsemi sína í annað sveitarfélag.

Landfylling kallar á breytt deiliskipulag

Aðspurður segir Lúðvík greinilegt að Alcan á Íslandi vilji skoða möguleika á uppbyggingu innan sinnar lóðar í Hafnarfirði. Spurður hvort landfylling til handa stækkuðu álveri rúmist innan núverandi deiliskipulags svarar Lúðvík því neitandi. "Ég á von á því að slíkt myndi kalla á breytingu á deiliskipulagi og þá kemur það auðvitað til kasta bæjarins og bæjarbúa að taka ákvörðun um framhaldið í þeim efnum, alveg eins og var í vor," segir Lúðvík og minnir á að í íbúakosningunni hafi íbúar aðeins verið að taka afstöðu til ákveðinnar útfærslu á deiliskipulagi. "Þetta var ekki tillaga um stækkun eða ekki stækkun til eilífðar fyrir fyrirtækið. Það var bara tillaga um ákveðna útfærslu á deiliskipulagi," segir Lúðvík og bendir á að fyrirtækið hafi rétt til að koma með nýjar tillögur.

Ráðamenn Alcan funda í dag með iðnaðarráðherra. Alcan hefur leitað eftir því hjá sveitarstjórnum í Vogum og Þorlákshöfn hvort til greina komi að reisa þar álver. Íbúaþing verður haldið í Vogum í kvöld til að ræða málið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert