[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Innlent | Morgunblaðið | 14.9.2007 | 05:30

Dæmdur fyrir vopnað rán

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvítugan pilt í nítján mánaða fangelsi, m.a. fyrir tilraun til vopnaðs ráns í 10-11 verslun í júní sl. Honum var jafnframt gert að greiða 400 þúsund krónur í sakarkostnað.

Pilturinn var einnig ákærður fyrir að aka bifreið án tilskilinna réttinda og þjófnað á leikjatölvu úr verslun Hagkaupa. Hann játaði öll brotin og kvaðst m.a. hafa stolið leikjatölvunni, sem kostaði 70 þúsund krónur, til að gera upp fíkniefnaskuld.

Hvað varðar vopnaða ránið, þá skýrði pilturinn frá því að hann hefði þurft að útvega fjármagn til að greiða handrukkurum, sem voru farnir að hóta honum. Skuldin var upp á 150 þúsund krónur.

Pilturinn réðst inn í 10-11 verslunina vopnaður hnífi og hafði í frammi ógnandi tilburði í garð afgreiðslustúlku. Stúlkan þekkti piltinn, þar sem hann hafði áður unnið í versluninni. Hún greindi svo frá að hann hefði haldið hnífinum u.þ.b. fjörutíu sentímetrum frá andliti hennar, rifið af henni talstöð og ýtt inn á lager.

Þar hafi pilturinn reynt að opna peningaskáp sem ekki tókst og þegar viðskiptavinur kom inn í verslunina flúði hann á brott.

Héraðsdómarinn Gunnar Aðalsteinsson kvað upp dóminn. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fulltrúi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sótti málið og Bjarni Hauksson hdl. varði piltinn.

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær