Geir til Lúxemborgar og Belgíu

Geir H. Haarde, forsætisráðherra.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heimsækir Lúxemborg og Belgíu í síðari hluta febrúar til viðræðna við forsætisráðherra ríkjanna. Hann mun einnig eiga viðræður við fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.

Geir mun eiga fund með Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar 26. febrúar nk. og einnig kynna sér starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja í hertogadæminu sama morgun.

Þaðan fer Geir til Belgíu og mun 26. – 27. febrúar nk. eiga fundi með Guy Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Jose Manuel Barrosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Javier Solana, utanríkismálastjóra ESB, Benita Ferrero-Waldner, framkvæmdastjóra ESB á sviði utanríkismála, og Olli Rehn, framkvæmdastjóra ESB á sviði stækkunarmála.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert