Leit við erfiðar aðstæður

Leitarmenn við störf inni í TF-SÝN.
Leitarmenn við störf inni í TF-SÝN. Árvakur/Árni Sæberg

Leit að bandarísku Cessnu 330 flugvélinni sem brotlenti um 50 mílur vestur af Keflavík í gær hófst í birtingu í morgun er dönsk Challenger herþota fór á leitarsvæðið. Unnið er út frá nýrri leitaráætlun sem reiknuð hefur verið út frá reki og áætluðum brotlendingarstað.

Í fyrstu var áætlað að láta Fokkervél Landhelgisgæslunnar TF-SYN og dönsku herþotuna skiptast á að fara yfir leitarsvæðið en leitaráætlunin breyttist í morgun og er Fokkervélin að undirbúa sig undir flugtak.

Veður og sjólag er enn slæmt og ekki er reiknað með að senda þyrlur á leitarsvæðið að svo stöddu.

Varðskipið Ægir er á leitarsvæðinu og stýrir leit. Togararnir þrír sem aðstoðuðu við leitina í nótt eru farnir af svæðinu.

Enn hafa ekki borist upplýsingar um þjóðerni flugmannsins en vélin sem var í ferjuflugi frá Bandaríkjunum og kom frá Narsassuaq á Grænlandi er hún brotlenti um klukkan fjögur í gær.

Að sögn upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar er vitað að flugmaðurinn var með björgunarbát um borð og miðast leitin við það. Hins vegar hefur neyðarsendir flugvélarinnar ekki farið í gang en hann myndi gefa nána staðsetningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Jakob Falur Kristinsson: Leit
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert