Tveir menn féllu niður um ís

Hvaleyrarvatn.
Hvaleyrarvatn. mbl.is/Loftmyndir

Tveir menn féllu niður um ís á Hvaleyrarvatni um þrjúleytið í dag.  Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru þeir að keyra á torfæruhjólum á ísnum sem var ekki nógu traustur.  Hringt var í Neyðarlínuna og komu menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins á staðinn með búnað til að bjarga mönnunum á þurrt.

Að sögn lögreglu voru mennirnir, sem eru feðgar, blautir og kaldir en að öðru leyti varð þeim ekki meint af.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert