Ráðherra færði lögreglunni á Vestfjörðum tetrastöðvar

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur gefið lögreglunni á Vestfjörðum 13 tetrastöðvar og mun hver og einn lögreglumaður framvegis hafa eigin tetrastöð til afnota. Þetta kemur fram á lögregluvefnum.

„Mikill fengur er í þessari rausnarlegu gjöf ráðherrans og skiptir hún miklu máli bæði fyrir lögregluna og íbúa fjórðungsins, en eins og kunnugt er hafa verið settir upp tetrasendar víðs vegar á Vestfjörðum og er því samband við fjarskiptamiðstöð víða orðið mjög gott. Gjöf ráðherra kemur í kjölfar heimsóknar hans til Ísafjarðar í febrúar s.l. en þá heimsótti hann m.a. sýslumanninn á Ísafirði og lögregluna.  Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra eru sendar þakkir fyrir rausnarlega og góða gjöf,“ segir á vef lögreglunnar. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert