Fangelsi fyrir innbrot og bílþjófnað
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 18 ára gamlan karlmann í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi og 100 þúsund króna sekt fyrir að brjótast inn í bílasölu á Akureyri og stela þar tölvum og bíllyklum. Hann tók síðan bíl traustataki og ók honum um götur Akureyrar og inn Eyjafjörð. Hann skildi bílinn síðan eftir án þess að setja í handbremsu og bíllinn rann út af veginum og skemmdist.
Pilturinn var einnig dæmdur til að greiða málskostnað og til að greiða bílasölunni 96 þúsund krónur í bætur.
Fram kemur í dómnum að pilturinn á að baki nokkurn brotaferil þrátt fyrir ungan aldur en hann hefur m.a. verið dæmdur fyrir líkamsárás. Hann lýsti yfir fyrir dómnum, að hann hafi frá síðastliðnu hausti breytt hegðan sinni til hins betra með því að stunda starfsþjálfun hjá Fjölsmiðjunni, gæta hófsemi og breyta nokkuð umgengni við kunningjahóp sinn. Þá sagðist hann hafa byrjað sambúð.
Til baka








Senda inn efni

