
Mýrarhúsaskóli. mbl.is/Kristinn
Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur
Bloggað um fréttina
-
Steina Hlín AðalsteinsdóttirOk þessar dómara eru i rugli
-
BLOGGERhvað eru dómarinn að pæla ?
-
Guðbjörn JónssonÞað eru ekki bara dómararnir sem gera mistök
-
Jóna Kolbrún GarðarsdóttirÞessi dómur er ekki í lagi.
-
Guðrún Fanney Einarsdóttirhmmm.....
-
Helena KristinsdóttirEr ekki eitthvað bogið við þá dóma sem við höfum
-
Hildur Sveinsdóttirja hérna
-
Þóra GuðmundsdóttirUndarlegur dómur.
-
Eyrún GísladóttirEr ekki allt í lagi
-
Ingunn Valgerður HenriksenÞetta finnst mér alveg fáránlegur dómur!!!!
-
Guðborg EyjólfsdóttirHvað er að verða um þetta þjóðfélag
-
Elísabet Sóley StefánsdóttirEinelti - hvatvísi - aspergerheilkenni -
-
Rósa HarðardóttirUndarlegur dómur
-
Gísli Birgir ÓmarssonKjaftstopp..............
-
Óskar ÞorkelssonÉg skammast mín fyrir íslenskt dómskerfi
-
Ragnar Páll ÓlafssonDómari segðu af þér!
-
Inga Lára HelgadóttirAð vita muninn á réttu og röngu,...
-
Jón Aðalsteinn JónssonTaka börnin úr skólunum
-
Gunnar Ágúst ÁsgeirssonAf hverju eru allir svona brjálaðir yfir þessu?
-
Þórhildur Helga ÞorleifsdóttirJa,hérna hér...
-
Friðrik Árni FriðrikssonFlottur dómur
-
RiddarinnBorgar hún í endann?
-
Björgvin GuðmundssonDæmd til að greiða kennara tæpar 10 millj. fyrir
-
Dísa DóraNú missti ég endanlega trúnna
-
hofy sigFáránlegur dómur.
-
Guðný ÁsgeirsdóttirDómskerfið á Íslandi er ótrúlegt!!
-
Halla RutFötluð stúlka sem gerði óvilja verk.
-
ÁsgerðurHeimsmet í skrítnum dómum
-
Sóley TómasdóttirÓnýtt
-
SnowmanHvaðan koma dómarar landsins ?
-
Soffía SigurðardóttirEf þú ert tryggður ...
-
Stefán Friðrik StefánssonMerkilegur dómur
-
Lára StefánsdóttirÁbyrgð barna meiri en karla?
-
BlómiðEkki vildi ég vera ..........
-
Steinn HafliðasonUmhugsunarvert
-
ÉgOpnar á endalausa vitleysu ... !
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag móðir ungrar stúlku, sem var nemandi í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, til að greiða kennara stúlkunnar rúmar 9,7 milljónir króna í skaðabætur auk 1 milljónar króna í málskostnað. Stúlkan renndi hurð á höfuð kennarans og slasaði hann.
Fram kemur í dómnum, að stúlkan hefur verið greind með Aspergerheilkenni. Stúlkunni hafði í nóvember 2005 sinnast við bekkjarfélaga sína og farið inn í geymslu, sem var lokað með rennihurð. Kennarinn ætlaði að sækja stúlkuna og stakk höfðinu inn í geymsluna en þá skall rennihurðin á andliti hennar og hentist hún þá með höfuðið á vegg. Síðan hefur hún þjáðst af höfuðverk, öðrum eymslum og þrekleysi.
Kennarinn stefndi bæði stúkunni og Seltjarnarnesbæ fyrir hönd skólans vegna slyssins. Í niðurstöðu fjölskipaðs héraðsdóms segir, að stúlkan, sem var nýorðin 11 ára þegar þetta gerðist, hafi þekkt muninn á réttu og röngu og ekkert í málinu bendi til þess að fötlun hennar hafi skert dómgreind hennar eða að vitsmunaþroski hennar hafi verið minni en almennt hjá börnum á sama aldri.
Þá segir í dómnum, að ekkert liggi fyrir um það í málinu að stúlkan hafi ætlað sér að skella hurðinni á kennarann heldur sé líklegra að hvatvísi hennar hafi þar ráðið för eða reiði vegna þess að henni hafði sinnast við skólabræður sína. Á hinn bóginn hafi henni mátt vera ljóst, að sú háttsemi hennar að loka hurðinni með afli væri hættuleg og hún hlyti að hafa gert sér grein fyrir því hversu alvarlegar afleiðingar sú háttsemi gat haft í för með sér. Því beri stúlkan skaðabótaábyrgð á tjóni kennarans.
Skólinn var sýknaður af kröfu um skaðabætur þó að matsmaður hafi talið að klemmivörn á hurðinni hafi ekki komið í veg fyrir að hún skall á höfði kennarans. Dómurinn taldi hurðina uppfylla öryggiskröfur í lögum.
Til baka








Senda inn efni

