[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Geir Jón Þórðarson, yfirlögregluþjónn, gefur Sturlu Jónssyni, talsmanni bílstjóra, í nefið eftir að samkomulag náðist um að bílstjórar hættu aðgerðum í Ártúnsbrekku.

Geir Jón Þórðarson, yfirlögregluþjónn, gefur Sturlu Jónssyni, talsmanni bílstjóra, í nefið eftir að samkomulag náðist um að bílstjórar hættu aðgerðum í Ártúnsbrekku. mbl.is/Júlíus

Innlent | mbl.is | 31.3.2008 | 08:16

„Ráðamenn vakni og Íslendingar rísi upp"

Sturla Jónsson, forsvarsmaður bílstjóranna sem stöðvuðu umferð í Ártúnsbrekku í hátt í klukkutíma í  morgun, sagði í samtali við blaðamann mbl.is að alltaf hafi staðið til að aðgerðirnar stæðu í klukkutíma og að þeim hafi verið hætt í sátt við lögreglu.

Lögregla færir einn bílstjórann inn í lögreglubíl.

Lögregla færir einn bílstjórann inn í lögreglubíl. mbl.is/Júlíus

Hann og annar maður hafi hins vegar verið færðir nauðugir inn í lögreglubíla og líti hann svo á að hann hafi verið handtekinn. Hann viti þó ekki hvort um formlega handtöku hafi verið að ræða. Hann hafi rætt við lögreglumenn inni í bílnum en ekki fylgst með því hvað lögreglumaður sem sat fyrir aftan hann í bílnum hafi verið að skrifa niður.

Þá sagði Sturla frekari aðgerðir ekki standa til að hálfu bílstjóra en að hann voni að aðgerðir þeirra verði til þess ráðamenn vakni af svefninum og Íslendingar rísi upp og láti ekki kúga sig lengur.

Með aðgerðum sínum vilja vörubílstjórar mótmæla hárri álagningu ríkisins á eldsneyti sem skilar sér í hærra eldsneytisverði,  einhliða hvíldarlögum ríkisins og lélegri aðstöðu fyrir vörubílstjóra til að njóta þeirrar hvíldar sem gert er ráðfyrir í umræddum lögum. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær