Norskt skip að ólöglegum veiðum

TF-GNÁ.
TF-GNÁ.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, stóð í gær norska línuveiðiskipið Gayser Senior að meintum ólöglegum veiðum inni á lokuðu svæði í Skaftárdjúpi undan Suðausturlandi.  Svæðið er lokað með reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð og hefur verið lokað á þessum tíma undanfarin ár. 

Stýrimaður þyrlunnar seig um borð í skipið og rannsakaði meint brot, fór yfir afladagbækur og önnur skipsskjöl.  Að þeirri athugun lokinni var ákveðið að vísa skipinu til hafnar í Vestmannaeyjum þangað sem það kom nú fyrir hádegið.

Mál skipsins verður tekið til nánari rannsóknar af lögreglustjóranum í Eyjum, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert