Skjalasafn Bjarna Benediktssonar afhent Borgarskjalasafninu

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mynd/Ólafur K. Magnússon

Einkaskjalasafn Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi borgarstjóra og forsætisráðherra, var í dag formlega afhent Borgarskjalasafni Reykjavíkur til varðveislu og eignar en 100 ár eru í dag liðin frá fæðingu Bjarna.

Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, og Björn Bjarnason fyrir hönd lögerfingja Bjarna, skrifuðu undir samning um afhendinguna en í honum kemur fram hvaða skjöl eru afhent og hvaða aðgangsskilyrði eru að þeim.

Fram kemur í tilkynningu, að um sé að ræða einstaklega yfirgripsmikið og umfangsmikið skjalasafn sem spanni allt frá æskudögum hans til dauðadags.

Bjarni Benediktsson fæddist árið 1908 og lést árið 1970. Bréfa- og málasafn hans spannar allan pólitískan feril hans, þar með talið frá tíma hans sem borgarfulltrúi, borgarstjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, þingmaður, dóms- og kirkjumálaráðherra, menntamálaráðherra, utanríkisráðherra og forsætisráðherra.

Sömuleiðis eru í safninu skjöl frá störfum hans sem ritstjóri Morgunblaðsins, lagaprófessor og lögmaður. Um er að ræða móttekin bréf, afrit útsendra bréfa, greinargerðir, skýrslur, minnisblöð og fleira. Meðal annars er til umfjöllunar stjórnarskrármálið, utanríkismál, efnahagsmál og fleira. Í safninu er mikið magn af ræðum og greinum og sömuleiðis drög að ræðum sem sýna hvernig þær hafa mótast. Þá er í safninu fjöldi ljósmynda, einkum af opinberum viðburðum en eitthvað af fjölskyldumyndum.

Unnið er að skráningu skjalasafnsins og mun það verða opnað til rannsókna eigi síðar en 1. febrúar 2009.

Opnuð hefur verið vefsíða tileinkuð Bjarna Benediktssyni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert