[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík

Sverrir Vilhelmsson

Innlent | mbl.is | 9.5.2008 | 17:22

Kröfu rétthafa vísað frá í Hæstarétti

Hæstiréttur hefur vísað kröfu rétthafa frá gegn Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni á þeim forsendum að málsóknarumboð væru ekki gild fyrir rétthafasamtökin SMÁÍS, SÍK, FHF og STEF. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SMÁÍS. Er rétthöfum gert að greiða Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni 400 þúsund í málskostnað.

Félagasamtökin höfðuðu mál á hendur Istorrent og Svavari Lútherssyni og kröfðust þess að viðurkennt yrði að þeim væri óheimilt að starfrækja tiltekna vefsíðu í nánar tilgreindum tilgangi. Þá kröfðust þeir staðfestingar á lögbanni og skaðabóta. Málinu var vísað frá héraðsdómi og var sá úrskurður til endurskoðunar fyrir Hæstarétti sem einnig vísaði málinu frá.

„Þessi niðurstaða er miður og ótrúlegt að ætla að meina rétthafasamtökum að leita réttar sinnar félagsmanna. Hér er óþarfa leikur að réttarformlegheitum í þessu máli frekar en að taka á málum efnislega.
Það hefur ekki enn fengist efnisleg niðurstaða í þessu máli og reynist erfitt að fá dómara til að fara yfir málið sjálft, þ.e.a.s höfundarréttarlögin sjálf.
Í kjölfarið neyðast rétthafarnir sjálfir til að höfða sama mál í eigin nafni á nákvæmlega sömu forsemdum og áður en nú án málsóknarumboðs til rétthafasamtaka.

Þar með vonast rétthafar að loksins verði efnislega tekið á þessu máli og harma það jafnframt að þessi niðurstaða mun leiða til þess að auka kostnað stefnenda og stefnda auk þess að leggja frekari álag á réttarkerfið," að því er segir í tilkynningu frá SMÁÍS.  

Dómur Hæstaréttar  

Vefur Istorrent 

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag