NSS leggjast gegn áformum um Bitruvirkjun

Frá Hellisheiði.
Frá Hellisheiði. mbl.is/ÞÖK

Náttúruverndarsamtök Suðurlands, NSS, leggjast alfarið gegn  áformum  um virkjun við Bitru, áður nefnd Ölkelduhálsvirkjun og telja að virkjunin  rýri verulega lífsgæði íbúa í Hveragerði og í næsta nágrenni.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum sem hafa gert athugasemdir við auglýstar breytingar á aðalskipulagi sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árin 2002 - 2014, en frestur til athugasemda rennur út í dag.

Í tilkynningunni segir að NSS „telja að ekki hafi verið sýnt fram á að HS2 mengun og hávaðamengun af virkjuninni verði með þeim hætti  að ásættanlegt sé að stunda slíka starfsemi við þétta byggð. Þó svo að fyrirhugað sé að leita leiða til að hreinsa HS2 úr útblæstri, og að niðurdæling sé áformuð,  er óvíst að  það muni  leysa þann vanda sem skapast getur á framkvæmdatíma ef af virkjuninni verður  enda ekki áformað eða mögulegt að hreinsa þann útblástur.

NSS vekja athygli á að HS2 mengun frá Hellisheiðarvirkjun hefur m.a. haft áhrif á loftgæði á höfuðborgarsvæðinu  Einnig er vakin  sérstök athygli á því að íbúar í Hveragerði og forystumenn þess sveitarfélags hafa gert ítrekaðar athugasemdir við áform um virkjun við Ölkelduháls/Bitru og leggjast eindregið gegn henni.

NSS vísa til þess að Hengilssvæðið, Ölkelduháls, dalirnir ofan Hveragerðis og afréttur Ölfuss nýtur vaxandi vinsælda, sem útivistarsvæði íbúa á vestanverðu Suðurlandi og höfuðborgarsvæðisins. Hér er um að ræða dýrmætt útivistarsvæði í nánasta nágrenni við helsta þéttbýli landsins sem er auk þess að hluta til á náttúruminjaskrá. Svæðið er því ekki einungis dýrmætt fyrir Ölfusinga og Hvergerðinga heldur alla landsmenn.

NSS telja að náttúrugæðum verði spillt til frambúðar með fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum við Ölkelduháls og hvetja til varfærni og biðlundar með slíkar framkvæmdir. Bent skal á að svokallað landsskipulag liggur ekki enn fyrir og að alls óvíst sé hvort að virkjanaklasar af því tagi sem áformaðir eru á Hellisheiði, með tilheyrandi orkuflutningskerfi standist slíka skoðun þegar til kemur. Eins má benda á að alls ekki er fyrirséð hvort að losunarheimildir fáist fyrir stóriðjuáformum þeim sem að virkjun við Bitru hefði átt að knýja. Bent skal á að kapp er best með forsjá í þessum málum sem öðrum.

NSS gagnrýna  ennfremur þann gjörning  að sveitarfélagið Ölfus hafi með samningi við Orkuveitu Reykjavíkur skuldbundið sig til þess að skipuleggja svæðið „til samræmis við þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru“ svo vitnað sé í bókun bæjarstjórnar Ölfuss frá 28. apríl 2006.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert