[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær

mbl.is/Ómar Bragi Stefánsson

Innlent | mbl.is | 3.6.2008 | 15:46

Reynt að koma í veg fyrir að fella þurfi næsta hvítabjörn

Í ljósi atburða dagsins mun umhverfisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir, fara yfir atburðarásina með viðkomandi stofnunum og kanna hvort hægt sé að koma í veg fyrir að fella þurfi næsta hvítabjörn sem gengur hér á land. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu.

„Í morgun bárust þær fréttir til umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar að sést hefði til hvítabjarnar við Þverárfjallsveg, milli Sauðárkróks og Skagastrandar. Umhverfisráðherra kom þeim skilaboðum strax til lögreglu á staðnum að leitað yrði allra leiða til að fanga björninn og flytja hann á stað þar sem honum yrði óhætt og ekki stafaði hætta af honum.

Í kjölfarið leitaði starfsfólk umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar ráða hjá dýralæknum og sérfræðingum stofnana, Landhelgisgæslu og Háskóla Íslands um hvort og hvernig hægt væri að fanga björninn og flytja hann í sitt rétta umhverfi. Það reyndist samdóma álit allra sem rætt var við að það myndi reynast miklum erfiðleikum háð, m.a. vegna þess að rétt deyfilyf væru ekki til á landinu.

Aðstæður kröfðust þess að dýrið yrði fellt

Aðgerð sem þessi er afar flókin og krefst þess að til verksins sé notuð þyrla og sérþjálfað starfsfólk. Ef svæfing heppnast þarf að flytja dýrið í neti frá þeim stað þar sem það liggur og í sérhannað búr. Flutningstími má ekki vera langur vegna þess að áhrif svæfingar fjara út og að auki geta flutningar reynst dýrinu lífshættulegir. Hvorki tækni- né sérfræðiþekking á slíkri aðgerð er fyrir hendi hér á landi.

Meðan á athugun umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar stóð upplýsti lögregla á vettvangi ráðuneyti og Umhverfisstofnun að hættuástand væri að skapast. Hvítabjörninn stefndi í átt til byggða og að menn óttuðust að missa sjónar af dýrinu vegna lélegs skyggnis.

Samkvæmt lögum er lögreglu heimilt að fella hvítabjörn ef fólki eða búfénaði er talin stafa hætta af. Það reyndist mat lögreglu á vettvangi að aðstæður krefðust þess að dýrið yrði fellt," að því er segir í tilkynningu.


© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Ísbjörn í Skagafirði

Innlent | Morgunblaðið | 27.07.2008 | 08:10

Líka hneykslast á ísbjarnardrápi 1974

Innlent | mbl.is | 20.07.2008 | 07:28

Engir ísbirnir fundust

Innlent | mbl.is | 20.07.2008 | 00:23

Ísbirnir á Hornströndum?

Innlent | Morgunblaðið | 01.07.2008 | 05:30

Hvítabjörninn sýndur á Hafíssetrinu á Blönduósi

Innlent | mbl.is | 25.06.2008 | 14:04

Blaðamannafélagið ályktar um ísbjarnarmál

Innlent | mbl.is | 24.06.2008 | 07:10

Björninn væntanlega rolla

Innlent | mbl.is | 23.06.2008 | 20:41

Leit að bjarndýri stendur yfir

Innlent | mbl.is | 23.06.2008 | 14:27

Ekkert sést til bangsa

Innlent | mbl.is | 23.06.2008 | 11:02

Héðinn býðst til að smíða ísbjarnarbúr

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær