15.000 konur tóku þátt í kvennahlaupi

Frá Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ.
Frá Kvennahlaupi ÍSÍ í Garðabæ. mbl.is/hag

Talið er að um 15.000 konur hafi tekið þátt í kvennahlaupi Sjóvá ÍSÍ sem fór fram í 19. sinn í dag.  Hlaupið fór fram á 90 stöðum út um allt land og á um 20 stöðum erlendis. 

Um 3.500 konur hlupu í Garðabænum, 1300 í Mosfellsbæ og 710 á Akureyri. Mikil og góð stemning var víða um land þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert