Frestun ekki inni í myndinni

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra. Ómar Óskarsson

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir ekki inni í myndinni að fresta byggingu nýja háskólasjúkrahússins, líkt og haft var eftir Gunnari Svavarssyni, formanni fjárlaganefndar í Morgunblaðinu í morgun. Ráðherra segir þetta í sunnudagsútgáfu blaðsins.

„Þetta eru bara hugleiðingar Gunnars,“ segir Guðlaugur Þór og bætir við að það sé ekki vaninn að ræða hugmyndir manna um fjárlög fyrr en þau liggja endanlega fyrir. „Að mínu mati kemur ekki til greina að leggja málin upp með þeim hætti sem hann gerir. Það liggur alveg fyrir að það þarf að mæta hinum breyttu aðstæðum í efnahagslífinu, en í mínum huga er ekkert sem kallar á það að breyta í grundvallaratriðum áætlunum varðandi háskólaspítalann.“

Fjármálaráðuneytið spáir 19,6 milljarða kr. halla á ríkissjóði 2009 og 15 2010. Haft var eftir formanni fjárlaganefndar í  Morgunlaðinu í morgun að verið væri að skoða hvar tækifæri væru í ríkisrekstrinum til hagræðingar.

Vert er að geta þess að Kristján Þór Júlíusson, flokksbróðir heilbrigðisráðherra og varaformaður fjárlaganefndar, sagði í samtali við Fréttastofu Útvarpsins í dag að skera yrði niður útgjöld og eðlilegt væri að líta í því sambandi til verkefna eins og háskólasjúkrahússins og Sundabrautar. Þau væru ekki heilagri en önnur verkefni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert