[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Big Mac er dýr á Íslandi en þó ekki dýrastur í heimi.

Big Mac er dýr á Íslandi en þó ekki dýrastur í heimi.

Innlent | mbl.is | 25.7.2008 | 11:18

Ísland tapar efsta sætinu í Big Mac vísitölunni

Norðmenn sitja nú stoltir í efsta sæti Big Mac vísitölunnar, sem breska tímaritið Economist reiknar út árlega. Hafa Norðmenn náð efsta sætinu af Íslendingum sem oftast hafa verið afar ofarlega á listanum. Nú er Ísland í 3.-4. sæti ásamt Dönum en á eftir Norðmönnum, Svíum og Svisslendingum.

Í vísitölunni er borið saman verð á Big Mac-hamborgaranum víða um heim. Samkvæmt henni er gengi íslensku krónunnar gagnvart Bandaríkjadal 67% hærra en það ætti að vera, þ.e. ef Big Mac kostaði jafnmikið og í Bandaríkjunum. Þetta hlutfall er hins vegar 121% í Noregi, 79% í Svíþjóð og 78% í Sviss.

Gengislækkun krónunnar undanfarið hefur haft talsverð áhrif en fyrir ári var gengi íslensku krónunnar 131% hærra en það ætti að vera samkvæmt Big Mac vísindum Economist.

Tímaritið segir vísitöluna sýna, að evrópskir gjaldmiðlar séu dýrir um þessar mundir en asískir ódýrir.  Ódýrustu hamborgararnir eru í Hong Kong, Malasíu og Kína.

Umfjöllun Economist 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær