Þúsundir á Blómstrandi dögum í Hveragerði

Blómstrandi dagar voru haldnir í Hveragerði um helgina.
Blómstrandi dagar voru haldnir í Hveragerði um helgina. mbl.is/Magnús Sigurðsson

Blómstrandi dagar voru haldnir um helgina í Hveragerði.  Í gær lögðu um 10 - 13.000 manns leið sína til Hveragerðis og tóku þátt í hátíðarhöldum í bænum.

Brekkusöngur var í gærkvöldi þar sem giskað er á að um 2-3000 manns hafi verið saman komin og dansleikur þar á eftir, þar sem mörg hundruð manns skemmtu sér með hljómsveitinni Á móti sól.

Að sögn lögreglunnar á Suðurlandi var rólegt hjá þeim og gekk allt vel fyrir sig.  Dagskrá Blómstrandi daga heldur áfram í dag og lýkur í kvöld með tónleikum í Hveragerðiskirkju.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert