[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 3.3.10
2 8 34 39 41 46
17 25   48
Jóker
2 3 9 6 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Hafravatn, 270 Mosfellsbær Hafravatn Mosfellsbær
Dalaland, 108 Reykjavík Dalaland Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Sigtún, 105 Reykjavík Sigtún Reykjavík
Klettás, 210 Garðabær Klettás Garðabær
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Framnesvegur, 101 Reykjavík Framnesvegur Reykjavík
Krummahólar, 111 Reykjavík Krummahólar Reykjavík
Lækjasmári , 201 Kópavogur Lækjasmári Kópavogur
Barðastaðir, 112 Reykjavík Barðastaðir Reykjavík

mbl.is/Eggert Jóhannesson

Innlent | Morgunblaðið | 19.8.2008 | 05:50

Einhver virðist vera að safna í hreiðrið sitt

Eftir Andrés Þorleifsson andresth@mbl.is

„Það er eins og einhver hafi verið að safna í hreiðrið sitt,“ segir Bergþór Hauksson, sem telur líklegt að útigangsmenn hafi verið að verki þegar brotist var inn í hús hans að Vesturvallagötu 7. Hann hefur búið þar í 12 ár en aldrei lent í innbroti fyrr en í síðustu viku, þegar brotist var inn í gestaíbúð á fimmtudagskvöld og, til að bæta gráu ofan á svart, aftur á laugardaginn. „Fjárhagslega tjónið er ekkert óskaplegt,“ segir Bergþór, sem finnst miklu erfiðara að vita til þess að einhver hafi komið inn til hans í óþökk hans.

Lögregla telur að þjófarnir hafi spennt upp glugga við útidyrnar og náð að smeygja sér í gegnum hann. Engar skemmdir voru unnar á íbúðinni, en í fyrra skiptið tóku þjófarnir hluti á borð við hljómtæki og sæng.

Á laugardaginn hafa innbrotsþjófarnir komið að kvöldi til milli klukkan sex og átta. Hirtu þeir þá ýmislegt í eigu þýsks vinafólks fjölskyldunnar, sem dvaldist í húsinu. „Við fjölskyldan fórum [um klukkan sex] í bíó og komum aftur um klukkan átta. Þetta gerist þarna akkúrat á milli, eins og einhver hafi verið að fylgjast með. Það er ónotatilfinning sem fylgir því.“

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær