Eggjum kastað í Alþingishúsið

Mótmælt við Alþingishúsið
Mótmælt við Alþingishúsið mbl.is/Júlíus

Fleiri þúsund manns eru í miðborg Reykjavíkur og mikill hiti í fólki. Er verið að kasta eggjum í Alþingishúsið og áðan var fáni Bónus dreginn á hún. Hann hefur nú verið tekinn niður en lögregla er fáliðuð og veitist mannfjöldinn að henni.Hefur fólk umkringt Alþingishúsið og er lögregla að hörfa undan reiðum mótmælendum sem segjast vera búnir að fá nóg.

Einn hefur verið handtekninn af lögreglu en fréttamaður mbl.is sem er á staðnum segir að það sé frekar lítill hópur sem veitist að lögreglunni. Alþingishúsið er allt þakið eggjaklessum og jógúrt. 

Mótmælt í miðbænum
Mótmælt í miðbænum mbl.is/Júlíus
Fólk hefur umkringt Alþingishúsið
Fólk hefur umkringt Alþingishúsið mbl.is/Július
Mótmælendur veitast að lögreglu.
Mótmælendur veitast að lögreglu. mbl.is/júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert