Friður og blómagjafir á Austurvelli
Bloggað um fréttina
-
Sigurveig EysteinsdóttirÞjóðarstoltið horfið ???
-
Vilborg TraustadóttirAllt sem við viljum er friður á jörð
-
Salvör Kristjana GissurardóttirSterkur útifundur á Austurvelli - Þung undiralda
-
Þorkell SigurjónssonÞAKKIR FYRIR ÞAÐ GÓÐA OG FAGRA.
-
Geimveranborgarafundur.org
-
Magnús Geir GuðmundssonMótmæli með reisn!
-
Einar Rafn ÞórhallssonFrábær mótmæli
-
Jón Halldór EiríkssonJÁ!
-
Stefán Friðrik StefánssonFjölmenn mótmæli - lýðræðisvakning örlagatíma
-
Óskar ÞorkelssonHörður Torfa ! Takk fyrir mig.
-
Páll Rúnar PálssonVið getum sýnt umheiminum....
-
Þórdís Bára HannesdóttirNýir vendir sópa best.
-
Ásthildur Cesil ÞórðardóttirFrábær fundur, takk kæru íslendingar, samlandar
-
Asdis SigFriðurinn floginn í veg og þá hætti stöð 2 að
-
Einar Vignir EinarssonEkki eru allir sem eru með ofbeldi
-
Bergur ThorbergBlómsveigur við Alþingishúsið
„Ég gæti trúað að hér væru um 6000 manns. Þetta er miklu meira en var um síðustu helgi. Og það er góður andi í fólkinu. Okkur er létt, lögreglumönnum. Hér höfum við tekið á móti blómum, það er friður yfir öllum,“ sagði Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is en hann var þá mitt í mannþrönginni á Austurvelli.
Magnþrungnar ræður hafa verið haldnar á mótmælafundinum. Hörður Torfason sem fer fyrir breiðfylkingu mótmælenda hefur ítrekað hvatt til friðar og lagt áherslu á að mótmælin eigi að vera friðsamleg. Undir það hefur mannfjöldinn á Austurvelli tekið þó reiðin kraumi undir.
Mótmælin fóru friðsamlega fram en örlítill hópur ungs fólks, um eða innan við tuttugu manns, tók sig til og grýtti eggjum, tómötum og fleiru í Alþingishúsið. Lögreglan heldur að sér höndum en er við öllu búin.
Boðað hefur verið til sjöunda mótæmælafundarins á Austurvelli næstkomandi laugardag. Þá verður efnti til opins borgarafundar á NASA næstkomandi mánudagsköld.
Til baka








Senda inn efni

