Alvarleg líkamsárás fest á filmu

Mynd úr myndskeiðinu, sem birtist á vefnum í dag.
Mynd úr myndskeiðinu, sem birtist á vefnum í dag.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur nú til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem fest var á filmu í Njarðvík í dag. Myndskeið af líkamsárásinni var birt á vefsíðunni Youtube.com fyrir skömmu og hún er þar kölluð slagur. Í raun eru þar hins vegar þrír unglingsdrengir að veitast að einum, með höggum og spörkum, á meðan aðrir fylgjast með. Þar sést hvernig þeir láta spörkin dynja á baki, kvið og höfði þolandans.

Yfirvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum segir að sér hafi verið brugðið við að horfa á myndbandið, en ónefndur aðili sendi myndskeiðið til lögreglunnar á tölvupósti. Aðspurður segir hann að augljóslega sé um alvarlega líkamsárás að ræða, brot á 218. grein almennra hegningarlaga. Brot á þeirri lagagrein varðar sektum eða fangelsi allt að þremur árum, en ef brotið er sérstaklega hættulegt getur það varðað fangelsi allt að 16 árum.

Drengurinn sem varð fyrir árásinni leitaði sér læknisaðstoðar í dag. Lögregla hefur sett sig í samband við hann. Yfirvarðstjóri tjáði blaðamanni mbl.is að gælunöfn árásarmannanna séu þekkt, málið sé í rannsókn og að gengið verði í það mál á morgun að hafa uppi á árásarmönnunum.

Myndskeiðið var fjarlægt af vefnum en hefur verið sett þangað aftur inn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert