Gekk örna sinna í runna á Austurvelli

Jón Sigurðsson hefur orðið vitni að ýmsu á Austurvelli þessa …
Jón Sigurðsson hefur orðið vitni að ýmsu á Austurvelli þessa dagana. mbl.is/Kristinn

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um sofandi mann á Austurvelli um kl. 10 í morgun. Þegar lögreglumenn bar að garði fór maðurinn inn í runna og gekk örna sinna. Að sögn lögreglu var maðurinn drukkinn.

Maðurinn, sem telst til góðkunningja lögreglunnar, var handtekinn og látinn sofa úr sér á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í dag, en honum var sleppt nú síðdegis.

Manninum var hins vegar gert að þrífa upp eftir sig, sem hann gerði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert